© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
12.9.2006 | 16:32 | oddur
Gríðarlega mikilvægur leikur í Keflavík á morgun
Íslenska karlalandsliðið leikur á morgun gegn Lúxemburg í B-deild Evrópukeppninnar í körfuknattleik. Leikurinn verður í Keflavík og hefst hann kl. 20:00. Ljóst er að það er nauðsynlegt fyrir íslenska liðið að sigra í þessum leik til þess að eiga áfram möguleika á því að komast upp í A-deild Evrópukeppninnar.

Luxembourg hafa líkt og við tapað báðum sínum leikjum til þessa. Fyrst voru það Georgíumenn sem unnu þá nokkuð auðveldlega í Tbilisi, 86 – 44 þar sem Luxarar sáu aldrei til sólar. Næsti leikur þeirra var svo gegn Austurríkismönnum á heimavelli, það benti fátt til annars en að Luxembourg tækist að vinna sinn fyrsta leik en staðan var 60 – 42 fyrir þá þegar um 3 mínútur voru eftir. En á ótrúlegan hátt tókst gestunum frá Austurríki að koma til baka og sigra 62 – 64 en þeir unnu lokakaflann 5 – 24.

Íslensku strákarnir eru staðráðnir í því að komast á sigurbraut og eru allir klárir í slaginn. Frekari upplýsingar um liðin munu birtast á síðunni á morgun.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Jón Arnór í sniðskoti gegn Finnum í Laugardalshöll 6. september 2006.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið