© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
24.9.2015 | 9:00 | Kristinn | Fræðslumál
Haustfjarnám ÍSÍ 2015: 1. og 2. stig
Haustfjarnám 1. og 2. stigs þjálfaramenntunar Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) mun hefjast mánudaginn 28. september nk. Námið stendur yfir í átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. stigi.

Opið er fyrir skráningu til og með morgundeginum 25. september.

Nám beggja stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur og gildir námið jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár og nemendur komið úr fjölmörgum íþróttagreinum.

Þjálfaramenntun ÍSÍ veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda.

Þátttökugjald á 1. stig er kr. 25.000. Öll námskeiðsgögn eru innifalin og send á heimilisföng nemenda. Þátttökugjald á 2. stig er kr. 22.000.

Skráning er á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000 og þarf henni að vera lokið fyrir föstudaginn 25. september. Með skráningu þarf að fylgja fullt nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og símanúmer og taka þarf skýrt fram á hvaða stig verið er að skrá. Rétt til þátttöku á 1. stigi hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi.

Fyrir nánari upplýsingar um fjarnámið og aðra þjálfaramenntun ÍSÍ má hafa samband við :

Viðar Sigurjónsson
vidar@isi.is
460-1467 / 863-1399
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Herbert Arnarson, Hermann Hauksson og Jón Arnar Ingvarsson landsliðsmenn voru allir atvinnumenn í Belgíu á seinni hluta tíunda áratugarins
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið