© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
1.9.2006 | 16:59 | oddur
Spánn og Grikkland mætast í úrslitum HM
Leikur Spánar og Argentínu var frábær skemmtun
Grikkir og Spánverjar komust í úrslit heimsmeistaramótsins í körfubolta. Undanúrslitaleikirnir voru leiknir í morgun og voru þeir sýndir í beinni útsendingu á rúv. Báðir leikirnir voru gríðarlega spennandi og skemmtilegir enda mikið mikið í húfi.

Leikur Grikkja og Bandaríkjanna var góð skemmtun þar sem að mikið var um tilþrif. Bandaríkjamenn byrjuðu betur og náðu 12 stiga forystu í fyrri hálfleik. Þá héldu flestir að þetta yrði formsatriði fyrir Bandaríkjamennina. Grikkirnir gáfust þó ekki upp heldur spýttu í lófa og náðu að vinna sig aftur inní leikinn með gífurlega góðri hittni í öðrum leikhluta.
Þeir héldu þessari góðu hittni svo áfram í þriðja leikhluta og komust 14 stigum yfir á tímabili. Bandaríkjamenn reyndu að vinna upp forskotið og náðu að minnka muninn í 4 stig á lokamínútunum. En lið Grikkjanna reyndist þeim ofjarl og náðu þeir að sigra 101-95.

Spánverjar og Argentínumenn mættust í hinum leiknum og var sá leikur einnig frábær skemmtun. Argentínumenn byrjuðu vel og náðu góðu forskoti en Spánverjarnir náðu fljótlega að vinna sig aftur inn í leikinn. Leikurinn var svo nokkuð jafn en Spánverjar þó oftast með forystuna. Þeir náðu að auka forskot sitt í 12 stig í seinni hálfleik en Argentínumönnum tókst að jafna og var staðan 74-74 þegar 19 sekúndur voru eftir. Argentínumenn brutu þá á Jose Manuel Calderon og hitti hann úr öðru vítaskotinu sínu. Í lokasókninni keyrði Manu Ginobili að körfunni og sendi á Andres Nocioni sem fékk opið þriggja stiga skot í horninu. Skotið fór þó ekki ofan í körfuna og eru Spánverjar því komnir í úrslitaleikinn.

Það er ljóst að körfuboltaáhugamenn voru hæstánægðir að geta fylgst með þessum leikjum í sjónvarpinu. Á sunnudaginn verður úrslitaleikur Spánverja og Grikkja og mun Ríkissjónvarpið einnig sýna hann í beinni útsendingu. KKÍ vill þakka þeim fyrir það frábæra framtak.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
18 ára stúlknalandslið Íslands sem tók þátt í B-deild Evrópukeppninnar sumarið 2006. Stelpunum gekk afar vel á mótinu og misstu naumlega af sæti í A-deild.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið