© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
20.8.2006 | 11:46 | oddur
Fyrstu umferð á HM lokið
Fyrsta umferðin á HM í körfuknattleik, sem haldið er í Japan 19. ágúst til 3. september, var leikin í gær. Tólf leikir voru í gær og voru flestir þeirra nokkuð jafnir.

Nígería kom á óvart með því að sigra Serbíu/Svartfjallaland, sem að eru ríkjandi heimsmeistarar.
Tyrkir náðu að sigra Litháen þrátt fyrir að tveir þekktustu leikmenn þeirra, Mehmet Okur og Hedo Turkoglu, leiki ekki með á mótinu.

Argentínumenn sigruðu Frakka í erfiðum leik þar sem Manu Ginobili var stigahæstur með 25 stig. Spánn vann Nýja Sjáland frekar auðveldlega og voru þrír leikmenn Spánverja jafnir með 16 stig.
Bandaríkjamenn lentu í basli í fyrri hálfleik gegn Puerto Rico en náðu að tryggja sér sigur 111-100.

Úrslit, tölfræði og umsagnir um leikina má finna hérna.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Björn Leósson, dómari, tilbúinn með knöttinn.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið