© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
12.8.2006 | 14:56 | OOJ
Stelpurnar enda í 17. sæti eftir tap gegn Portúgal í dag
Hafrún skoraði 12 þrista á mótinu, fjóra þeirra í dag.
Íslenska 16 ára landslið kvenna tapaði fyrir Portúgal, 58-66, í lokaleiknum sínum í b-deild evrópumótsins í Jyvaskyla í Finnlandi í dag. Íslenska liðið lék einn sinn besta leik í keppninni og það er ljóst að þrátt fyrir erfiða leiki og sterka andstæðinga þá hafa stelpurnar haft mjög gott af því að reyna sig gegn stóru þjóðunum í Evrópu. Íslenska liðið endar í 17. og síðasta sætinu en allir sjö leiki íslenska liðsins töpuðust. Fyrirliðinn, Hafrún Hálfdánardóttir, var stigahæst með 20 stig en hún var valin besti leikmaður íslenska liðsins í dag af mótshöldurum.

Íslensku stelpurnar byrjuðu leikinn af miklum krafti, voru 11-5 yfir eftir rúmar þrjár mínútur, 19-8 yfir, eftir 5 mínútur og hafði 9 stiga forskot, 28-19, eftir fyrsta leikhlutann. Portúgalir náðu að snúa leiknum í öðrum leikhluta sem var slakasti leikhluti íslenska liðsins í leiknum. Íslensku stelpurnar náðu þá aðeins að skora 4 stig gegn 21 og gekk þá illa að leysa pressu portúgalska liðsins sem skoraði 10 af stigum sínum í leikhlutanum úr hraðaupphlaupum. Íslenska liðið var því komið 8 stigum undir í hálfleik, 32-40. Sá munur hélst í seinni hálfleiknum en sjö stigum munaði eftir þriðja leikhlutann, 50-57. Íslensku stelpurnar náðu muninum niður í fimm stig, 56-61, þegar fjórar mínútur voru eftir en nær komust þær ekki og Portúgal vann átta stiga sigur og spilar til úrslita um 15. sætið við Austurríki á morgun.

Hafrún Hálfdánardóttir hefur verið sjóðheit fyrir utan þriggja stiga línuna í mótinu og skoraði 12 af 20 stigum í dag fyrir utan. Hafrún nýtti 4 af 7 þriggja stiga skotum sínum og er þar með 40% skotnýtingu (12 af 30) fyrir utan þriggja stiga línuna í mótinu. Ragna Margrét Brynjarsdóttir tók 15 fráköst í leiknum auk 10 stig og stigahæsti leikmaður íslenska liðsins í evrópumótinu í Jyvaskyla, Lilja Ósk Sigmarsdóttir, var með 11 stig og 7 fráköst.

Atkvæðamestar hjá íslenska liðinu gegn Portúgal í dag:
Hafrún Hálfdánardóttir 20 stig (5 fráköst, 3 varin, hitti úr 4 af 7 þriggja stiga skotum)
Lilja Ósk Sigmarsdóttir 11 stig (7 fráköst, 3 stolnir)
Ragna Margrét Brynjarsdóttir 10 stig (15 fráköst)
Ingibjörg Jakobsdóttir 5 stig
Klara Guðmundsdóttir 5 stig (4 fráköst)
Guðbjörg Sverrisdóttir 4 stig (4 fráköst, 3 stoðsendingar)
Gunnhildur Gunnarsdóttir 3 stig
Kristín Fjóla Reynisdóttir, Salbjörg Sævarsdóttir, Helena Hólm og Lóa Dís Másdóttir skoruðu allar en náðu ekki að skora.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Leikmann A-landsliðs karla og kvenna stilla sér upp í myndatöku.  Aftari röð f.v.; Brenton Birmingham, Jón Arnór Stefánsson og Logi Gunnarsson. Fremri röð f.v.: Birna Valgarðsdóttir og Helena Sverrisdóttir.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið