© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
8.8.2006 | 10:45 | BL
Ágúst með æfingabúðir að Ásvöllum
Ágúst Björgvinsson körfuboltaþjálfari.
Körfuboltabúðir verða á Ásvöllum undir handleiðslu Ágústs Björgvinssonar dagana 14.-18. ágúst. Búðirnar eru hugsaðar fyrir áhugasama stráka og stelpur á aldrinum 14(´92) til 18(´88) ára.

Ágúst er þjálfari Íslandsmeistara Hauka og var kostinn besti þjálfari 1. deildar kvenna undanfarin tvö tímabil. Að þessu verður búðunum skipt upp eftir stöðum. Fyrstu þrjá dagana(14.-16. águst) verða bakvarðabúðir og seinni tvo dagana(17. og 18. ágúst) verða miðherja/framherjabúðir. Körfuboltabúðirnar eru á milli 09.00 og 12.00 frá mánudeginum 14. ágúst. til 18. ágúst.

Skráning fer fram með tölvupósti á basketball@visir.is eða á fyrsta degi námskeiðisins, 14. ágúst, á Ásvöllum kl. 09:00. Það er einnig hægt að fá frekari upplýsingar og svör við fyrirspurnum á póstfangið basketball@visir.is.

Verð er 2.500 krónur fyrir bakvarðabúðirnar og 2.000 krónur fyrir miðherja/framherjabúðirnar. Ef farið er í báðar búðirnar kostar það 3.500 krónur. ATH. takmarkaður fjöldi kemst að.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Brenton Birmingham leikmaður Grindavíkinga er ekki alveg sammála dómurum leiksins. Dæmd var villa á hann þegar hann reyndi að verjast troðslu Jón Arnórs Stefánssonar.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið