© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
5.8.2006 | 13:17 | hbh
Grátlegt tap fyrir Dönum!
Egill Jónasson skrifrar eiginhandaráritun fyrir aðdáendur
Íslenska landsliðið tapaði gegn Dönum í leik um bronsverðlaun á NM 2006 í Tempere, Finnlandi 82-81. Íslenska liði leiddi mestan leikinn en danir komust þrisvar sinnum 1 stigi yfir og í síðasta sinn í blálokin og lönduðu því sigri.

Leikurinn var hraður og skemmtilegur og mörg skemmtileg tilþrigf sáust til beggja liða, m.a. tróð Friðrik Erlendur Stefánsson í þrígang og í eitt skiptið var troðslan þvílík að undir tók í öllu húsinu! Ísland leiddi mestan hluta leiksins og komst mest í 12 stiga í upphafi þriðja leikhluta. Danir hittu vel úr þriggja stiga skotum í fjórða leikhluta og komust aftur inn í leikinn og jöfnuðu á lokamínútunni í 81-81 þegar 14.4 sekúndur voru eftir. Ísland átti boltann og átti að klára leikinn með síðasta skotinu eða fara í framlengingu ella. Logi gunnarsson tók skot er um 5 sekúndur voru eftir boltinn datt inn í teig og danir ná boltanum og Hlynur Bæringsson brýtur klaufalega af sér þegar 1,2 sekúndur voru eftir og Danir fengu tvö vítaskot. Fyrra skotið fór ofaní en síðan klikkaði seinna viljandi og við náðum ekki að skjóta fyrir leikslok. Leikur sem Ísland átti að vinna lokið með sigri Dana!

Sigurður Ingimundarson var óánægður með að við skildum kasta sigrinum frá okkur: "Við töpuðum þessum leik ekki á síðustu sekúndunum heldur gerðu við okkur seka um að slaka of mikið á þegar við náðum forystunni og hleyptum þeim aftur inn í leikinn. Það var alger óþarfi að gefa Dönum þennan leik."

Helstu tölur úr leiknum

Jakob Sigurðarson 19 stig, 3 fráköst, 1 stoðsending
Hlynur Bæringsson 13 stig, 4 fráköst
Logi Gunnarsson 8 stig, 1 stoðsending
Helgi Magnússon 8 stig, 6 fráköst
Sigurður Þorvaldsson 8 stig, 1 frákast
Páll Axel Vilbersson 8 stig, 1 stoðsending
Magnús Þór Gunnarsson 6 stig, 2 fráköst
Friðrik Erlendur Stefánsson 6 stig, 3 fráköst, 1 stoðsending
JÓn Nordal Hafsteinsson 5 stig, 1 frákast
Egill Jónasson 2 fráköst, 1 blokk

Úrslit og tölfræði leikja á mótinu
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Íslandsmeistarar KR eftir sigur á Grindavík í oddaleik en einvígið fór 3-2.
Leiknum lauk 84-83 á heimavelli KR. 2.200 manns mættu á leikinn sem er met í DHL-höllinni.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið