© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
4.8.2006 | 20:19 | OOJ
24 stiga tap fyrir heimamönnum í fyrsta leik
Lilja Ósk Sigmarsdóttir spilaði vel í dag.
Íslenska 16 ára landslið kvenna tapaði með 24 stigum, 48-72, fyrir Finnum í fyrsta leik sínum í b-deild evrópumótsins í Jyvaskyla í Finnlandi en Finnar voru tíu stigum yfir í hálfleik, 23-33. Íslenska liðið byrjaði mjög illa í leiknum en átti mjög góðan annan leikhluta sem stelpurnar sýndu hvað þær geta. Lilja Ósk Sigmarsdóttir var atkvæðamest í íslenska liðinu með 13 stig, 6 fráköst og 4 stolna bolta en hún var valinn besti leikmaður íslenska liðsins af mótshöldurum í leikslok.

Finnar fengu fljúgandi start, komust í 7-0 og 17-2 eftir aðeins fjögurra mínútna leik. Eftir fyrsta leikhlutan skyldu síðan 18 stig á milli liðanna en Finnar leiddu 27-9. Íslensku stelpurnar áttu mjög góðan annan leikhluta sem þær unnu með 8 stigum, 14-6, og komu muninum því niður í tíu stig fyrir hálfleik, 23-33. Önnur slæm byrjun í upphafi seinni hálfleiks þýddi það að Finnar komust 24 stigum yfir, 28-52, og eftir það var munurinn í kringum tuttugu stigin. Finnar voru 23 stigum yfir eftir þriðja leikhluta, 32-55, og komust mest í 29 stiga forskot í þeim fjórða en íslensku stelpurnar áttu ágætan endasprett og minnkuðu muninn niður í 24 stig.

Lilja Ósk Sigmarsdóttir kom sterk inn af bekknum og skoraði sjö af 13 stigum sínum í öðrum leikhlutanum sem vannst 14-6. Lilja var í lok leiksins valin besti leikmaður íslenska liðsins og fékk að launum lítinn bikar til minningar um þessa góðu frammistöðu. Lilja var stigahæst í íslenska liðinu ásamt öðrum Grindvíkingi en Ingibjörg Jakobsdóttir skoraði stigi minna en hún.

Atkvæðamestar í íslenska liðinu gegn Finnum:
Lilja Ósk Sigmarsdóttir 13 stig (6 fráköst, 4 stolnir, 3 stoðsendingar)
Ingibjörg Jakobsdóttir 12 stig (hitti úr 2 af 4 3ja stiga skotum)
Hafrún Hálfdánardóttir 8 stig (12 fráköst)
Gunnhildur Gunnarsdóttir 6 stig (6 fiskaðar villur)
Ragna Margrét Brynjarsdóttir 4 stig (7 fráköst, 12 mínútur, 5 villur)
Helena Hólm 3 stig (4 fráköst)
Salbjörg Sævarsdóttir 2 stig
Allar stelpurnar komu við sögu í leiknum og þær Lóa Dís Másdóttir og Guðbjörg Sverrisdóttir komu báðar í fyrsta skipti inná í landsleik. Lóa Dís tók meðal annars sjö fráköst.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
A landslið karla sem tók þátt í C riðli Evrópukeppninnar í Hempstead árið  1977. Aftari röð frá vinstri: Birgir Örn Birgis þjálfari, Steinn Sveinsson sem var í landsliðsnefnd, Torfi Magnússon, Val, Bjarni Jóhannesson, KR, Pétur Guðmundsson, Val, Jón Jörundsson, ÍR, Bjarni Gunnar Sveinsson og Einar Bollason þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Gunnar Þorvarðarson, Njarðvík, Kári Marísson, Njarðvík, Kristin Jörundsson, ÍR, Ríkharður Hrafnkelsson Val og Jón Sigurðsson, Ármanni.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið