© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
9.9.2015 | 23:14 | Kristinn | EuroBasket 2015
EuroBasket 2015 · 73:99 tap fyrir Spáni
Myndir: FIBA


Lokaleikur B-riðilsins í Berlín í kvöld var leikur gegn firnasterku liði Spánar. Þetta var í fyrsta sinn sem þjóðirnar mætast í evrópukeppni. Leikar fóru 73:99 fyrir Spán en í viðtali eftir leik sagði Jón Arnór Stefánsson að honum fyndist tölurnar ekki gefa rétta mynd af leiknum og að honum hafi fundist íslenska liðið vera inni í leiknum langt fram í þriðja leikhluta.

Íslenska liðið var yfir 36:33 þegar um ein og hálf mínúta var til hálfleiks en Spánn átti lokasprettinn og var með fimm stiga forskot í hálfleik 41:36.

Í seinni hálfleik sýndi spænska liðið kraft sinn og skoraði grimmt inni í teig og fyrir utan þriggja stiga línuna og á endanum reyndist munurinn vera of mikill. Lokatölur leiksins 73:99





Á morgun fer fram lokaleikur íslenska liðsins á EuroBasket 2015 og verður það leikur gegn Tyrkjum á sama tíma og í dag (19:00 á Íslandi og 21:00 í Þýskalandi).

Leikurinn á morgun verður í beinni útsendingu á RÚV og RÚV HD og verður hitað upp fyrir leik í EM-stofu fyrir leikinn eins og verið hefur alla keppnina.

Dagskrá mótsins er eftirfarandi: íslenskir leiktímar (á staðartíma í sviga):
10.09.2015 - TYRKLAND Fimtudagur kl. 19.00 (21:00 í Þýskalandi)
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá Smáþjóðaleikunum á Möltu 1993.  Magnús Matthíasson, Guðmundur Bragason og Teitur Örlygsson í leik gegn Luxembourg.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið