© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
27.7.2006 | 12:18 | fararstjori | Yngri landslið
3 sigrar og 5 töp hjá U18 strákum í A-deildinni
Brynjar Þór var stigahstur í síðustu 2 leikjum
Strákarnir í U18 hafa lokið leik í lokakeppni EM 18 ára landsliða sem fram fer í Grikklandi. Íí gær töpuðu strákarnir fyrir Þýskalandi 63-92 í leik þar sem ekkert gekk upp. Í dag unnu þeir sigur gegn Ukraínu 102-86 og þar með sinn þriðja sigur á mótinu.

Brynjar Björnsson var stigahæstur í baðum leikjunum, 22 gegn Þjóðverjum og 30 stig gegn Ukraínu. Þjóðverjar eru með hávaxnasta liðið í keppninni og nánast ógjörningur fyrir lið eins og það íslenska að sækja að körfunni. Það var því vitað að hittnin fyrir utan yrði að vera í topp lagi en því míður gekk það ekki eftir. Hittnin var hins vegar í góðu lagi gegn Ukraínu í morgun. Allir hittu vel bæði fyrir innan og utan 3ja stiga línuna.

Þrátt fyrir þessa þrjá sigra á meðal þeirra bestu í heimsálfunni dugðu þeir ekki til að Ísland héldi sér uppi. Liðið endaði í 15. sæti. Nokkrar þjóðir sem unni færri leiki héldu sér uppi en fyrirkomulagið getur verið grimmt eins og í þessu tilfelli.

Leikir liðsins voru í aðra hvora áttina. Annað hvort vann liðið sannfærandi sigra eða tapaði sannfærandi. Þetta eru fyrstu leikir strákanna á meðal þeirra bestu og því reynslan á þessu leveli engin. Vaskleg framganga liðsins hefur vakið verðskulda athygli og hafa sumir leikmenn og þjálfari fengið fyrirspurnir frá erlendum liðum.

Í kvöld fer fram úrslitaleikur mótsins en þá eigast við núverandi Evrópumeistarar Frakka og Litháar. Hópurinn ætlar að sjálfsögðu að fara á leikinn og mun halda heim strax að honum loknum í langt og strangt ferðalag.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Anna María Sveinsdóttir og Kristín Blöndal fagna bikartitli Keflavíkur árið 2000.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið