© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
18.7.2006 | 13:35 | OOJ
Stelpurnar í 18 ára landsliðinu á leiðinni til Ítalíu
María Ben Erlingsdóttir bregður hér á leik með Fiba-Europe boltann.
Stelpurnar í 18 ára landsliði kvenna fara á morgun til Chieti á Ítalíu þar sem b-deild evrópukeppninnar fer fram í ár. Íslenska liðið er í riðli með Úkraínu, Lettlandi og Makedóníu og spilar sinn fyrsta leik sinn gegn Úkraínu á föstudaginn klukkan 15.15 að íslenskum tíma. Þetta er í annað skiptið sem Ísland sendir lið til leiks í Evrópukeppni 18 ára landsliða en margar af þessum stelpum voru með þegar íslenska liðið endaði í 8. sæti á evrópumótinu í Bosníu fyrir einu ári síðan. Stelpurnar tíu sem skipa íslenska hópinn hafa æft vel að undanförnu og eru tilbúnar í slaginn.

Alls taka fjórtán þjóðir þátt í b-deild evrópukeppninnar að þessu sinni en sextán þjóðir spila í a-deildinni sem fer á sama tíma fram á Tenerife á Spáni. Liðunum fjórtán er skipt niður í fjóra riðla, tvo með fjórum liðum og tvo með þremur liðum. Efstu tvær þjóðirnar í hverjum riðli komast í milliriðilinn þar sem barist er um sæti 1 til 8 en hinar þjóðirnar fara niður í milliriðil þar sem barist er um sæti 9 til 14.

1988-árgangurinn tók þótt í evrópukeppni 16 ára liða fyrir tveimur árum síðan og endaði þá í öðru sæti í sínum riðli en B-deildin var þá tvískipt og efsta liðið tryggði sér sæti í A-deildinni. Íslensku stelpurnar unnu þá 7 af 8 leikjum sínum. Sex leikmenn sem eru í liðinu nú voru með í Litháen 2004 en það eru þær Helena Sverrisdóttir, Bryndís Guðmundsdóttir, Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir, Hrönn Þorgrímsdóttir, Bára Bragadóttir og María Ben Erlingsdóttir.

Fyrirliðinn Helena Sverrisdóttir er bæði leikjahæst og stigahæst í íslenska liðinu og er ásamt þeim Maríu Ben Erlingsdóttur, Ingibjörgu Elvu Vilbergsdóttur og Berglindi Önnu Magnúsdóttur að fara á sína þriðju evrópukeppni. Berglind Anna fór bæði með 16 ára og 18 ára landsliðunum á evrópumótin í fyrrasumar. Helena hefur alls leikið 47 leiki fyrir íslensku yngri landsliðin og skorað í þeim 1089 stig en næst henni í leikjafjölda kemur María Ben Erlingsdóttir sem hefur spilað 43 landsleiki.

Leikir íslenska liðsins á Ítalíu:

- Riðlakeppnin -
Ísland-Úkraína Föstudagur 21. júlí Kl.15.15
Ísland-Makedónía Laugardagur 22. júlí Kl.13.00
Ísland-Lettland Sunnudagur 23. júlí Kl.17.30
- Milliriðlar -
25., 26. og 27. júlí.
- Leikir um sæti -
29. og 30. júlí.


Íslenska 18 ára landsliðið:

- Bakverðir -


Bára Bragadóttir
Lið: Keflavík
Aldur: 18 ára
Hæð: 175sm
Unglingalandsleikir/Stig: 23/87 (3,8)
Leikir/Stig í evrópukeppni: 8/34 (4,3)


Berglind Anna Magnúsdóttir
Lið: Grindavík
Aldur: 17 ára
Hæð: 170sm
Unglingalandsleikir/Stig: 21/37 (1,8)
Leikir/Stig í evrópukeppni: 16/16 (1,0)


Helena Sverrisdóttir
Lið: Haukar
Aldur: 18 ára
Hæð: 184sm
Unglingalandsleikir/Stig: 47/1089 (23,2)
Leikir/Stig í evrópukeppni: 16/367 (22,9)


Hrönn Þorgrímsdóttir
Lið: Keflavík
Aldur: 18 ára
Hæð: 173sm
Unglingalandsleikir/Stig: 18/29 (1,6)
Leikir/Stig í evrópukeppni: 8/3 (0,4)


Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir
Lið: Keflavík
Aldur: 18 ára
Hæð: 176sm
Unglingalandsleikir/Stig: 38/281 (7,4)
Leikir/Stig í evrópukeppni: 16/122 (7,6)

- Framherjar -


Bryndís Guðmundsdóttir
Lið: Keflavík
Aldur: 18 ára
Hæð: 180sm
Unglingalandsleikir/Stig: 30/263 (8,8)
Leikir/Stig í evrópukeppni: 8/76 (9,5)


Margrét Kara Stuludóttir
Lið: Keflavík
Aldur: 17 ára
Hæð: 178sm
Unglingalandsleikir/Stig: 23/112 (4,9)
Leikir/Stig í evrópukeppni: 8/53 (6,6)


Unnur Tara Jónsdóttir
Lið: Haukar
Aldur: 17 ára
Hæð: 181sm
Unglingalandsleikir/Stig: 18/117 (6,5)
Leikir/Stig í evrópukeppni: 8/66 (8,3)

- Miðherjar -


María Ben Erlingsdóttir
Lið: Keflavík
Aldur: 18 ára
Hæð: 184sm
Unglingalandsleikir/Stig: 43/557 (13,0)
Leikir/Stig í evrópukeppni: 16/262 (16,4)


Sigrún Ámundadóttir
Lið: Haukar
Aldur: 18 ára
Hæð: 180sm
Unglingalandsleikir/Stig: 18/74 (4,1)
Leikir/Stig í evrópukeppni: 8/39 (4,9)
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Einn af leikmönnum á yngra ári í minniboltaliði ÍR 1983, en hann hefur komið mikið við sögu í íslenskum körfubolta. Brynjar Karl Sigurðsson, þá 10 ára.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið