© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
10.7.2006 | 19:00 | OOJ
Grillað fyrir alla gesti á ágóðaleiknum í kvöld
Bryndís og María Ben ætla ekki að gefa neitt eftir í leiknum.
Það verður mikið fjör á Ásvöllum í kvöld þegar stelpurnar í 16 ára og 18 ára liðunum mætast í sérstökum ágóðaleik. Stelpurnar eru þessa daganna að safna fyrir ferðum sínum út á Evrópumótin sem hefjast á næstu vikum. Það ekki nóg með að stelpurnar ætli sjálfar að bjóða í körfuboltaveislu þá verður öllum gestum leiksins boðið í glæsilega grillveislu.
Alls eru 22 stelpur í landsliðunum tveimur og allar treysta þær á að þessum ágóðaleik verði vel tekið hjá körfuknattleiksáhugafólki.

Þetta er sannarlega efni í skemmtilega og gefandi kvöldstund. Það er ekki nóg með að stelpurnar fórni sumrinu í stífar og strangar æfingar þær þurfa líka að borga hluta af ferðakostnaðinum sjálfar. Það kæmi sér því afar vel að fá góðan stuðning og vonast stelpurnar því eftir góðri mætingu á leikinn. 18 ára liðið er á leiðinni til Ítalíu í seinni hluta þessa mánaðar og 16 ára liðið spilar sína leiki í Finnlandi í fyrri hluta ágústmánuðar.

- Dagskráin er klár -
Þú mætir á Ásvelli í kvöld klukkan 18.00, greiðir 1.500 krónur í aðgangseyri (500 krónur fyrir börn 12 ára og yngri), horfir á stelpurnar og eftir leikinn verður grillað og allir fara saddir og sælir heim. Þú getur líka styrkt stelurnar með framlagi ef þú af einhverjum ástæðum kemst ekki á leikinn. Þá skrárir þú bara nafnið þitt hér og haft verður samband við þig.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Hannes S. Jónsson formaður KKÍ, Pétur Hrafn Sigurðsson fyrrverandi framkvæmdastjóri KKÍ og Friðrik Ingi Rúnarsson framkvæmdastjóri KKÍ á góðri stundu á lokahófi KKÍ 2007.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið