© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
27.5.2006 | 22:30 | SÖA
Tveir úrslitaleikir og bronsleikur á dagskrá sunnudags
Í dag, sunnudag, leika íslensku unglingalandsliðin þrjá leiki. 18 ára landsliðin leika til úrslita og 16 ára landslið karla leikur um bronsið.

18 ára landslið karla ríður á vaðið þegar þeir mæta Svíum í úrslitum kl. 9:30 að íslenskum tíma. Ísland vann Svíþjóð með tveggja stiga mun í spennuþrungnum fyrsta leik mótsins á miðvikudag, 86-84. Svíar stefna væntanlega á að hefna ófaranna, en íslensku strákarnir ætla að verja Norðurlandameistaratitil sinn.

18 ára landslið kvenna leikur kl. 11:15, strax að loknum leik 18 ára liðanna. Aftur eru það Svíar sem stúlkurnar spiluðu við, en þær unnu nokkuð öruggan sigur á sænsku stúlkunum á fyrsta degi mótsins, 71-64. Eins og strákarnir, ætla stúlkurnar sér að verja Norðurlandameistaratitil sinn.

16 ára landslið drengja mætir Noregi í leiknum um bronsið, en liðin mættust í hörkuleik í gær, sem íslensku strákarnir unnu 72-67. Það má því búast við hörkuleik um bronsið.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá Smáþjóðaleikunum á Möltu 1993.  Albert Óskarsson í loftfimleikum í leik gegn Luxembourg.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið