© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
26.5.2006 | 9:59 | OOJ
Grátlegt tap fyrir Norðmönnum með einu stigi
Alma Rut Garðarsdóttir átti fínan leik í morgun - mynd: SÖA
Íslenska 16 ára landslið kvenna tapaði með einu stigi, 46-47, gegn Norðmönnum á Norðurlandamóti unglinga í Svíþjóð. Íslenska liðið var með frumkvæðið nánast allan leikinn en Norðmenn tryggðu sér sigurinn í lokin og þar með er nánast orðið ljóst að íslensku stelpurnar spila sinn síðasta leik í mótinu í kvöld gegn Finnum og enda þar með í 5. og síðasta sæti.

Norðmenn komust í 0-4 og 5-8 en þá áttu íslensku stelpurnar sinn besta sprett í leiknum þegar þær skoruðu 9 stig í röð og komust 14-8 yfir. Ísland var með 3 stiga forskot eftir 1. leikhluta, 17-14, og var einu stigi yfir í hálfleik, 26-25. Íslenska liðið hélt síðan naumri forustu í þriðja leikhluta og var yfir, 35-33, eftir hann. Slæmur fimm mínútna kafli í upphafi fjórða leikhluta sem Norðmenn unnu 10-2 og komust yfir 37-43 reyndist íslenska liðinu síðan of stór biti að kyngja. Boltinn vildi hreinlega ekki ofan í á æsispennandi lokamínútum leiksins.

Tapið í dag var mjög svekkjandi fyrir íslensku stelpurnar og það verður verðugt verkefni fyrir Yngva Gunnlaugsson þjálfara að rífa liðið upp fyrir leikinn gegn Finnum sem hefst klukkan 19.00 í kvöld að íslenskum tíma.

Ísland-Noregur 46-47 (17-14, 26-25, 35-33)
Stig Íslands: Alma Rut Garðarsdóttir 13 (12 fráköst, 3 stolnir), Hafrún Hálfdánardóttir 9 (3 stolnir), Ragna Margrét Brynjarsdóttir 9 (16 fráköst, 7 varin), Ingibjörg Jakobsdóttir 4 (6 fráköst, 7 stoðsendingar, 4 stolnir), Klara Guðmundsdóttir 3.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá Smáþjóðaleikunum á Möltu 1993.  Kolbeinn Pálsson formaður KKÍ, og Torfi Magnússon landsliðsþjálfari A-landsliða karla og kvenna.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið