© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
24.5.2006 | 16:00 | OOJ
16 ára lið karla spilar tvo leiki á fimmtudaginn
Snorri Páll Sigurðsson fyrirliði U-16 liðsins
Norðurlandamót unglinga hefst í Svíþjóð í dag. Sextán ára landsliðið stráka hvílir fyrsta daginn en hefur leik gegn Finnum klukkan 10.30 á morgun. Íslenska liðið spilar tvo mjög erfiða leiki þennan fyrsta dag því átta tímum síðar verður leikur við heimamenn í Svíþjóð flautaður á.

16 ára landsliðið hefur unnið til verðlaun tvö síðustu ár, varð Norðurlandameistari 2004 og endaði í 2. sæti í fyrra eftir hörku úrslitaleik gegn Svíum. Íslenska liðið hafði þá unnið leik liðanna í riðlakeppninni en tapaði úrslitaleiknum með fjórum stigum.

Þrír leikmenn liðsins hafa reynslu af landsliðinu því þeir Örn Sigurðarson, Hjörtur Halldórsson og Snorri Páll Sigurðsson voru einnig með 16 ára liðinu í fyrra. Örn spilaði bara með á Norðurlandamótinu og Snorri Páll var bara með í Evrópukeppninni en Hjörtur var með á báðum mótum og er því leikreyndasti leikmaður liðsins.

Flestir leikmenn liðsins koma frá Íslands- og bikarmeistaraliði KR eða fimmm en Blikar eiga næstflesta leikmenn í liðinu eða alls tvo menn. Alls eiga sex félög leikmenn í liðinu og sjöunda félagið, Grindavík, missti sinn fulltrúa í meiðsli á einni af síðustu æfingunum fyrir mótið.

Leikir liðsins: (Íslenskur tími)
Fimmtudagur 25. maí 10:30 Ísland-Finnland
Fimmtudagur 25. maí 18:30 Ísland-Svíþjóð
Föstudagur 26. maí 13:00 Ísland-Danmörk
Laugardagur 27. maí 15:00 Ísland-Noregur
Á sunnudeginum er síðan leikið um sæti

16 ára landslið karla á Norðurlandamótinu 2006

- Bakverðir -
Arnþór Freyr Guðmundsson Fjölnir 185 sm

Baldur Þór Ragnarsson KR 179 sm

Guðmundur Auðun Gunnarsson Keflavík 183 sm

Pétur Þór Jakobsson KR 183 sm

Sigmar Björnson Breiðablik 185 sm

Snorri Páll Sigurðsson KR 185 sm

Víkingur Sindri Ólafsson KR 187 sm

- Framherjar -
Hjörtur Halldórsson Breiðablik 191 sm

Sigurður Ólafsson KR 191 sm

Örn Sigurðarson Haukar 202 sm

- Miðherjar -
Einar Ólafsson UMFReykdælum 193 sm

Þorgrímur Guðni Björnsson Kormákur 197 sm

Ingi Þór Steinþórsson þjálfar liðið og er þetta í þriðja sinn sem hann fer með landslið á Norðurlandamótið. Undir stjórn Inga Þórs náði 18 ára landsliðið 2. sætinu 2003 og 3. sætinu í fyrra.

16 ára landslið karla á NM
2003 (1986) - 4. sæti
2004 (1988) - 1. sæti
2005 (1989) - 2. sæti

Gengi 16 ára landsliðs karla gegn þjóðum
Danmörk - (4 leikir) 3 sigrar og 1 tap, 75%
Finnland - (3 leikir) 2 sigrar og 1 tap, 33%
Noregur - (3 leikir) 2 sigrar og 1 tap, 33%
Svíþjóð - (5 leikir) 4 sigrar og 1 tap, 80%
Samtals: 15 leikir, 11 sigrar, 4 töp, 73%
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Íslensku stelpurnar í U-16 mættu sterku sænsku liði á Norðurlandamótinu 2009. Hér er Ína María Einarsdóttir með boltann.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið