S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
8.2.2001 | 22:07 | BL
Tindastóll tók 2. sætið af Keflavík
Njarðvíkingar eru í toppsæti deildarinnar. Þeir unnu stórsigur á Þórsurum í Njarðvík, 122-80. Þórsarar eru nú í 10. sæti Epson-deildarinnar. Íslandsmeistarar KR skutust upp í 4. sæti deildarinnar með 87-60 sigri á Skallagrím, sem sitja í 8. sæti, í Frostaskjóli. Hamar er í fimmta sæti deildarinnar eftir sigur á Grindvíkingum í Grindavík, 86-105. Í sjötta sætinu sitja Haukar, en þeir unnu botnlið KFÍ á Ásvöllum 103-86. Í Grafarvogi unnu ÍR-ingar sigur í nýliðaslag deildarinnar, 92-95. Valsmenn eru í 11. sæti deildarinnar, en ÍR-ingar í því 9. Í 1. deild kvenna léku ÍS og Keflavík í íþróttahúsi Kennaraháskóla Íslands. Lokatölur 43-72 sigur Keflavíkinga. |