© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
 
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
5.9.2015 | 5:00 | Kristinn | EuroBasket 2015
Stóra stundin runnin upp · EM hefst í dag


Í dag er komið að stóru stundinni sem allir hafa beðið eftir þegar EuroBasket 2015 hefst með opnunarleik Þýskalands og Íslands. Leikurinn í dag hefst kl. 15:00 að þýzkum tíma eða kl. 13:00 heima á Íslandi.

Þátttaka Íslands í mótinu hefur vakið mikla athygli og furðu að 330.000 manna þjóð nái inn á stórmót í svo stórri grein sem körfuknattleikur er í heiminum og strákarnir okkar ætla að sýna hvers vegna þeir eru komnir þetta langt, þeir eru tilbúnir í slaginn og munu skilja allt eftir á gólfinu.

Uppselt er fyrir löngu á leikinn og verða um 900 íslendingar í húsinu í dag af þeim rúmlega 14.000 manns sem þar verða.

Leikurinn verður í beinni útsendingu á RÚV og RÚV HD og verður hitað upp fyrir leik í EM-stofu fyrir leikinn.

Lifandi tölfræði verður frá öllum leikjum keppninnar á vef FIBA Europe og vef keppninnar eurobasket2015.org.

Hægt er að fylgjast með á samfélagsmiðlum FIBA sem og á #EuroBasket2015 á facebook og Twitter.



Um Þýskaland.
Stærsta stjarna Þýskalands er án efa Dirk Nowitzki sem hefur bæði orðið NBA-meistari með Dallas Mavericks og verið valinn besti leikmaður NBA (MVP) árið 2007 og bestur í úrslitakeppninni 2011. Þá hefur hann verið valinn besti leikmaður Evrópu tvívegis. Hann stigahæsti núverandi erlendi leikmaður deildarinnar og í sjöunda sæti frá upphafi. Auk hans leika í NBA Dennis Schroder (Atlanta Hawks). Aðrir leikmenn leika með stórum klúbbum víða um heiminn. Hægt er að skoða lið andstæðinganna hér á vef FIBA Europe eurobasket2015.org sem og allt um íslenska liðið.

Dagskráin mótsins er eftirfarandi: íslenskir leiktímar og á staðartíma í sviga:
05.09.2015 - Þýskaland Laugardagur kl. 13:00 (15:00 í Þýskalandi)
06.09.2015 - ÍTALÍA Sunnudagur kl. 16:00 (18:00 í Þýskaland)
08.09.2015 - SERBÍA Þriðjudagur kl. 12:30 (14:30 í Þýskaland)
09.09.2015 - SPÁNN Miðvikudagur kl. 19:00 (21:00 í Þýskaland)
10.09.2015 - TYRKLAND Fimtudagur kl. 19.00 (21:00 í Þýskaland)
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Ármenningar fagna langrþáðum Íslandsmeistaratitli með því að tollera félaga sinn, Birgi Örn Birgis, sem var að fagna sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli á 17 ára ferli.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið