© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
16.2.2006 | 11:06 | BL
Króati skoraði 113 stig í leik
Matej Kuna.
Stigaæði hefur runnið á menn um allan heim eftir að Kobe Bryant skoraði 81 stig fyrir LA Lakers á dögunum. Stúlka nokkur í menntaskóla í Bandaríkjunum skoraði stuttu síðar 113 stig í leik og nú hefur Króati nokkur, Mataj Kuna, leikið þann leik eftir í króatísku 2. deildinni.

Kuna, sem er 21 árs, skoraði stigin 113 í leik með liði sínu Belisce gegn Pozega, en fyrrnefnda liðið vann 159-77 sigur í leiknum. Kuna setti niður 43 stig í fyrri hálfleik og í þeim síðari fóru félagar hans að mata hann með sendingum þegar þeim varð ljóst að stigamet var í uppsiglingu. Rúmlega helming stiga sinna gerði Kuna úr þriggja stiga skotum, en hann setti niður 20 þrista í leiknum.

Fyrra metið átti goðsögnin sáluga, Drazen Petrovic, en hann skoraði 112 stig í leik í gömlu júgóslavnesku deildinni.

Matej Kuna var að vonum ánægur með sinn hlut, en sagðist fyrst og fremst stefna að því að útskrifast úr háskóla í framtíðinni. Ekki er ólíklegt að stóru liðin vilja krækja í kappann eftir þetta afrek, en kappinn hefur alla vega náð athygli stóru félaganna.

Í kjölfar þessa skyndilega stigaæðis hafa vaknað spurningar um siðferðið á bak við svona ofurskor, þá sérstaklega hjá börnum og unglingum. Sýnist þar sitt hverjum og er hér áreiðanlega um að ræða efni í heilt málþing.

Sjá nánar á vef FIBA Europe.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Liðsfélagarnir Kesha Watson og Birna Valgarðsdóttir úr Keflavík áttu frábært tímabil 2007-08. Birna var besta þriggja stiga skytta deildarinnar (44,0% nýting) en Kesha Watson var besta vítaskytta deildarinnar (84,4%). Fengu þær verðlaun sín í úrsltakeppni karla vorið 2008.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið