© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
30.1.2001 | 10:40 | BL
Erfiðir mótherjar í næstu undankeppni
Ísland mætir Finnlandi, Írlandi og Sviss í næstu undankeppni Evrópumóts landsliða. Leikið verður eftir nýju fyrirkomulagi og er fyrsti leikurinn gegn Finnlandi heima 2. júní.

Undankeppnin hefur hingað til verið leikin í sem fjölliðamót á 5-6 dögum, en samkvæmt nýja fyrirkomulaginu verður leikið heima og heiman í fjögurra liða riðlum. Tvær efstu þjóðirnar komast áfram í undanúrslitakeppnina, en keppninni líkur með úrslitakeppni í Svíþjóð 2003.

Ljóst er að róðurinn verður mjög þungur hjá íslenska liðinu þar sem allar þessar þjóðir sem eru mótherjar okkar að þessu sinni eru öflugar. Finnar og Svisslendingar voru í undanúrslitakeppninni í vetur en féllu niður í undankeppnina eins og Íslendingar. Írar voru þar hins vegar ekki, en þeir hafa verið þekktir fyrir að leita uppi írskættaða Bandaríkjamenn og setja þá í landsliðið.

Fyrsti leikurinn er gegn Finnum heima 2. júní, en síðan verður leikur úti gegn Svisslendingum 6. júní og Írum 9. júní. Síðari umferðin verður í ágúst en þá mæta Íslendingar Finnum úti 25. ágúst, Svisslendingum heima 29. ágúst og Írum heima 1. september.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Kristján Ágústsson og Björn Ottó Steffensen í baráttu um boltann í úrvalsdeildarleik liðanna í Seljaskóla um miðjan níunda áratuginn. Jón Örn Guðmundsson ÍR fylgist með.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið