S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
29.1.2001 | 11:55 | BL
KKÍ er 40 ára í dag
Sú afmælisgjöf sem landsliðið færði sambandinu um helgina var kærkomin og í raun besta gjöf sem KKÍ gat hugsað sér. Fyrsti sigurinn í undanúrslitakeppni Evrópumótsins hefði ekki getað komið á betri tíma. Með sigrinum er ákveðnum áfanga náð og víst er að markið verður sett hærra hjá landsliðinu á næstu árum. Framundan í vor er undankeppni fyrir næstu Evrópukeppni, þeirri sem líkur með úrslitakeppni í Svíðþjóð 2003. Íslenska landsliðið ætlar sér ekkert annað en sæti í undanúrslitakeppninni fyrir þá keppni. Afmælishóf í tilefni af 40 ára afmælinu verður haldið í febrúar nk. og þá kemur bókin um sögu KKÍ og körfuboltans á Íslandi út. |