© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
27.8.2015 | 13:13 | Kristinn | Landslið
Landsliðið komið til Póllands · Tveir leikmenn eiga afmæli í dag
Landslið karla í körfuknattleik ferðaðist í gær til Póllands þar sem liðið mun taka þátt í Poland Cup-mótinu næstu daga. Mótið er haldið í borginni Bydgoszcz og auk okkar og heimamanna munu Líbanon og Belgía taka þátt, en þetta mun vera í fyrsta sinn sem við leikum landsleik gegn Líbanon.

Líbanon hefur iðulega tekið þátt á HM í gegnum álfukeppnina í Asíu og eru verðugir andstæðingar. Í dag verður æft og svo slakað á og tekið því rólega.

Í dag eiga tveir heiðursmenn afmæli í liðinu en það eru þeir félagar Ragnar Nathanaelsson og Helgi Már Magnússon sem eru 24 ára og 33 ára. KKÍ óskar þeim til hamingju með daginn!

Upplýsingar um lifandi tölfræði og slíkt verður auglýst hér á síðunni og á facebook KKÍ á morgun þegar það liggur fyrir.

Dagskráin er eftirfarandi (ísl. tími)
28. ágúst kl. 18.00 - Pólland-ÍSL
29. ágúst kl. 15.30 - ÍSL-Líbanon
30. ágúst kl. 13:30 - ÍSL-Belgía
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Hinn lipri leikmaður ÍR, Björn Ottó Steffensen, tekur létt ballettspor í leik gegn Val í Seljaskóla um miðjan níunda áratuginn. Leifur Gústafsson Val og Hjörtur Oddsson ÍR fylgjast með. Aðeins sést í leikmann nr. 13 hjá Vla, en það er Tómas Holton.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið