© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
19.12.2005 | 11:18 | BL
Natalya Kovtoun tók við söfnunarfénu í Kiev
Anatolij Kovtoun.
Eins og kunnugt er kynnt var hér á vefnum fyrir nokkru stóðu fyrrum liðsfélagar Anatolij Kovtoun heitins í KR að fjársöfnun fyrir eftirlifandi fjölskyldu hans í Úkraínu. Söfnunin gekk vel og nú í byrjun vikunnar fékk Natalya, ekkja Tolja, söfnunarféð afhent.

Það var Guðrún S. Þorgeirsdóttir sendiráðsfulltrúi í íslenska sendiráðinu í Moskvu sem kom fénu í hendur Natalyu, eða andvirði 3.047 dollara. Að sögn Guðrúnar var Natalya mjög hrærð og þakklát, nánast orðlaus, vegna þessa góðverks og bar fyrir bestu kveðjum og einlægum þökkum til þeirra sem að söfnuninni stóðu og þeirra sem ljáðu henni lið. Með henni var 13 ára dóttir Tolja, 185 cm. á hæð, sem sagðist stefna á að feta í fótspor föður síns.

Til glöggvunar má geta þess að ofangreind upphæð nemur venjulegum launum ekkjunnar í eitt og hálft ár og skiptir því að vonum miklu máli og ekki síst hugurinn sem fylgir málinu.

Sjá nánar á vef KR.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Hann rífur í!   Bryndís Guðmundsdóttir passar að bikarinn sem U16 ára kvenna á Norðurlandamótinu í Svíþjóð árið 2004 skili sér til Íslands. Liðsfélagi hennar Helena Sverrisdóttir skutlar henni enda rífur bikarinn aðeins í.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið