© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
28.11.2005 | 16:18 | BL
Síðustu fjögur sætin á HM klár
Ítalíu, Puerto Rico, Serbíu og Tyrklandi hafa verið boðin fjögur síðustu sætin í heimsmeistarakeppninni sem fram fer í Japan á næsta ári. Þessar fjórar þjóðir eru valdar eftir fyrirfram gerði forskrift sem samþykkt var af FIBA.

Alls munu 24 þjóðir taka þátt í HM, en mótið fer fram 19. ágúst - 3. september 2006. Leikið verður í fjórum sex liða riðlum. Dregið verður í riðlana þann 15. janúar nk. í Tókyó í Japan.

Þær 24 þjóðir sem leika munu á HM verða því þessar: Angóla, Argentína, Ástralía, Brasilía, Kína, Frakkland, Þýskaland, Grikkland, Ítalía, Japan, Líbanon, Litháen, Nýja Sjáland, Nígería, Panama, Puerto Rico, Qatar, Senegal, Serbís & Svartfjallaland, Slóvenía, Spánn, Tyrkland, Venezúela og Bandaríkin.

Síðasta heimsmeistarakeppni fór fram í Indianapolis í Bandaríkjunum árið 2002. Júgóslavía bar þar sigur úr bítum, en Argentína varð í öðru sæti. Bandaríkin urðu aðeins í sjötta sæti og fyrstu tapaleikir bandarísks landsliðs skipuðu NBA-leikmönnum litu dagsins ljós. Fleiri slíkir bættust við á Ólympíuleikunum í Aþenu sem kunnugt er.

Mikil eftirvænting ríkir hvað varðar skipan bandaríska liðsins í næstu stórkeppnum eftir áföllin 2002 og 2004, því ljóst er að Bandaríkin eiga litla möguleika á sigri nema í liðinu séu allra bestu leikmenn þeirra úr NBA-deildinni.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Hannes S. Jónsso, formaður KKÍ og Helga Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, undirrita samning vegna Unlingalandsmóts 2009 á Sauðárkróki.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið