© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
24.11.2005 | 10:10 | BL
Síðasti leikur Hauka í FIBA Europe cup í kvöld
Haukaliðið á æfingu í höllinni á Sikiley.
Haukar ljúka keppni í FIBA Europe cup kvenna í kvöld þegar liðið mætir Ribera á Sikiley. Haukar hafa tapað öllum leikjum sínum í keppninni með miklum mun, en eru reynslunni ríkari eftir. Á vef Hauka er frétt um þátttöku liðsins í keppninni.

Á vef Hauka er fjallað um þátttöku Hauka í Evrópukepppninni:
Sú reynsla sem forsvarsmenn deildarinnar hafa fengið af samskiptum við FIBA-Europe og fjármögnun þessa verkefnis er mjög mikils virði og mun nýtast vel þegar deildin tekur þátt að nýju. Nú erum við reynslunni ríkari og höfum náð að greina þá þætti sem mestu máli skipta. Það er auðveldlega hægt að færa rök fyrir því að þekkingin og reynslan sé ígildi fjárfestingar sem mun skila sér í hagkvæmari og öruggara utanumhaldi í framtíðinni.

Haukar voru fyrst íslenskra kvennaliða til að taka þátt. Ekkert annað kvennalið frá Skandinaviu tók þátt. Við brutum blað í sögunni og deildin hefur fundið fyrir mikilli athygli og jákvæðri umfjöllun í fjölmiðlum fyrir vikið. Haukar geta verið stoltir af þáttökunni. Jafnréttisnefnd Hafnarfjarðar sá ástæðu til að styðja við verkefnið með 200.000 króna styrk, enda augljóst jafnréttismál á ferðinni.

Nánar á vef Hauka.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Hinn lipri leikmaður ÍR, Björn Ottó Steffensen, tekur létt ballettspor í leik gegn Val í Seljaskóla um miðjan níunda áratuginn. Leifur Gústafsson Val og Hjörtur Oddsson ÍR fylgjast með. Aðeins sést í leikmann nr. 13 hjá Vla, en það er Tómas Holton.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið