© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
19.1.2001 | 13:21 | BL/FIR
Bakverðir Makedóníu með þeim bestu í Evrópu
Eins og kunnugt er mætir íslenska landsliðið liði Makedóníu á miðvikudaginn kemur í Laugardalshöll. Leikurinn er síðasti heimaleikur Íslands í undanúrslitakeppninni að þessu sinni. Ljóst er að makedóníska liðið er mjög sterkt og verður því við ramman reip að draga eins og svo oft áður. Íslenska liðið, sem er í nokkurri endurnýjun þessi misserin, hefur þó verið í framför að undanförnu. KKÍ skorar á alla körfuknattleiksunnundur að fjölmenna í Höllina á miðvikudaginn og styðja við bakið á íslenska liðinu.

Makedónía er eitt af fyrrum ríkjum Júgoslavíu og þar ríkir mikil hefð fyrir körfuknattleik. Þeim hefur gengið vel sl. ár og komust þeir í úrslitakeppnina sem fram fór í Frakklandi sumarið 1999.

Lið Makedóníu er skipað mörgum góðum leikmönnum sem hafa leikið með mörgum af þekktari liðum Evrópu. Bakverðir þeirra eru sérlega öflugir og taka blaðamenn í Makedoniu svo sterkt til orða að þeir séu með bestu bakverði í Evrópu!! Eftir að hafa leikið gegn þeim einu sinni þá sáum við að það er ekki fjarri lagi.

Nánari upplýsingar um lið Makedóníu er að finna í samantekt Friðriks Inga Rúnarssonar um liðið í greinum.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá Smáþjóðaleikunum á Möltu 1993.  Elínborg Herbertsdóttir og Guðbjörg Norðfjörð í leik gegn Kýpur.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið