S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
17.1.2001 | 10:10 | BL
Örvar Kristjánsson í tveggja leikja bann
Aganefnd KKÍ hefur dæmt Örvar Kristjánsson leikmann 1. deildar liðs Stjörnunnar í tveggja leikja bann, en Örvari var vikið af leikvelli í leik Stjörnunnar og Þórs Þ. 6. janúar sl. Örvar verður því ekki með Stjörnunni í leikjunum gegn Selfossi um næstu helgi og Hetti um aðra helgi.
Örvar fékk dæmdar á sig tvær tæknivillur í leiknum gegn Þór og þar með brottrekstrarvillu. Örvar var síðan kærður til aganefndar fyrir óprúðmannlega framkomu, óhæfileg mótmæli við dómara fyrir, í og eftir kappleik og ógnun eða árásir á starfsmenn leikja eða dómara fyrir, í eða eftir kappleik. Aganefnd tók kæruna fyrir í gær, þar sem hún barst ekki vegna tæknilegra vandamála fyrir síðasta fund nefndarinnar, og niðurstaðan var tveggja leikja bann. Tvö önnur mál voru tekin fyrir á fundi nefndarinnar í gær. Þeir Eiríkur Sigurðsson Stjörnunni og Jónas Ólason Breiðabliki voru báðir dæmdir í eins leiks bann vegna brottrekstarvillu sem þeir fengu dæmda á sig í leik Stjörnunnar og Breiðabliks í unglingaflokki karla 8. janúar sl. þeir lentu í stympingum í leiknum og hlutu að launum brottrekstrarvillu frá dómara leiksins. Þeir voru kærðir til aganefndar fyrir óprúðmannlega framkomu. Leikbönn þessi taka gildi frá og með hádegi föstudaginn 19. janúar. |