© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
30.9.2005 | 17:30 | bl
Íslandsmótið hefst um helgina
Íslandsmótið í körfuknattleik 2005-2006 hefst nú um helgina með 1. umferð fjölliðamóta yngri flokkanna. Mót helgarinnar verða í Kópavogi, Njarðvík, Sandgerði, Keflavík, Reykjavík og Sauðárkróki.

Á sunnudaginn er síðan leikur FSU og KR í unglingaflokki karla á dagskrá í Iðu á Selfossi kl. 19:15 en það er fyrsti deildarleikurinn í niðurröðun vetrarins. Þess má geta að alls verða 148 deildarleikir á dagskrá í október mánuði, en deildarleikir eru þeir leikir sem dómaranefnd KKÍ raðar dómurum á.

Í næstu viku hefst síðan keppni í Hópbílabikar kvenna með leikjum Breiðabliks og Hauka á þriðjudag og fimmtudag.

Það verður síðan föstudaginn 7. október sem keppni hefst í 1. deild karla og í 1. deild kvenna er fyrsti leikur á dagskrá 11. október. Í 2. deild kvenna fer boltinn af stað 8. október og í úrvalsdeild er fyrsta umferð fimmtudaginn 13. október. Í unglingaflokki kvenna er fyrsti leikur mánudaginn 3. október og í drengjaflokki daginn eftir.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Fjölnismenn fagna ævintýralegum sigri á Grindavík í Grindavík 5. janúar 2007.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið