© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
17.8.2015 | 12:12 | U16KK
U16 karla enduðu númer 18 með fjóra sigurleiki
Þjálfarar liðsins þeir Ingi Þór Steinþórsson og Viðar Örn Hafsteinsson
Strákarnir í U16 ára landsliðinu töpuðu síðasta leiknum gegn Rúmeníu 79-72 eftir að jafnt hefði verið í hálfleik 34-34. Hákon Örn Hjálmarsson var stigahæstur með 16 og fyrirliðinn Gabríel Sindri Möller næstur með 15.

Strákarnir hófu leikinn í svæðisvörn og pressuðu gegn hávöxnu liði Rúmena, en liði hefur leikið 80% leikina í maður á mann með miklum ágætum. Íslenska liðið þvingaði Rúmenana í marga tapaða bolta en þeir unnu þá upp með sóknarfráköstum á lykil augnablikum. Staðan eftir fyrsta leikhluta 13-13. Hittni strákanna var döpur miðað við leikina á undan og klárt mál að Rúmenarnir voru líkamlega sterkari. Íslenska liðið náðu 6 stiga forystu 31-25 en vítaskot og galopin skot vildu ekki niður og það nýttu Rúmenarnir sér og jöfnuðu á ný 34-34 í hálfleik.

Strax í upphafi síðari hálfleiks náðu Rúmenar yfirhöndinni og komist mest í 11 stiga forystu í þriðja leikhluta. Íslenska liðið var því að elta og voru undir 9 stig 57-48 eftir þrjá leikhluta. Rúmenar hittu vel fyrir utan og voru farnir að brjóta svæðispressu Íslensku strákanna vel niður. Liðið skipti yfir í maður á mann en það virkaði ekki nægjanlega vel. Rúmenar juku forystuna mest í 17 stig um miðjan fjórða leikhluta. Frábær barátta liðsins kom muninum niður í 7 stig en nær komust þeir ekki og lokatölur 79-72.

Íslensku strákarnir enduðu því númer 18 af 24 með fjóra sigurleiki og fimm tapleiki. Ferðin gekk vel í alla staði og góð samstaða var í hópnum
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Íslandsmeistarar ÍR 1962. Frá vinstri: Haukur Hannesson, Einar Ólafsson, Agnar Friðriksson, Hólmsteinn Sigurðsson, Guðmundur Þorsteinsson, Helgi Jóhannsson, Sigurður P. Gíslason, Þorsteinn Hallgrímsson, Tómas Zoëga og Steindór Guðjónsson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið