© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
 
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
20.9.2005 | 14:40 | bl
Endanleg niðurröðun leikja gefin út
KKÍ hefur gefið út endanlega niðurröðun leikja fyrir keppnistímabilið 2005-2006. Niðurröðun hverrar deildar eða flokks er að finna hér til hægri á vefnum.

Úrvalsdeild karla hefst 13. október, en dagana þar á undan hefst keppni í 1. deild karla og kvenna, unglingaflokki karla og kvenna og drengjaflokki.

Meistarakeppnin verður leikið 9. október og verða leikirnir að þessu sinni í Keflavík á heimavelli Íslandsmeistaranna í karla og kvennaflokki.

Keppni í 2. deild deild karla hefst um miðjan október í flestum riðlum, en einstaka leikir eru fyrr og sömu sögu er einnig að segja um 2. deild kvenna. Í 2. deild karla A-5 á suðurlandi bættist við nýtt félag, Sindri frá Höfn, þegar verið var að ljúka við niðurröðun leikjanna og því er dagskrá leikja í þeim riðli ekki tilbúin.

Keppni í drengaflokki er tvískipt í ár. Sex félög leika í A-riðli og sjö í B-riðli og eru riðlarnir nokkuð styrkleikaskiptir. Í 8-liða úrslitakeppni komast öll félögin í A-riðli ásamt tveimur efstu félögum B-riðils.


mt: Keflavíkingar hefja titilvörnina í Seljaskóla 13. okt., en þessi lið mættust einmitt í undanúrslitum í fyrra. Sverrir Þór Sverrisson í vörn gegn Eiríki Önundarsyni, en þessir kappar verða meðal leikreyndustu leikmanna deildarinnar í vetur.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Fyrstu Íslandsmeistararnir fengu ekki verðlaunagrip ti eignar 1952. KKÍ færði hins vegar hverjum og einum meistaranna úr ÍKF fallegan grip mörgum árum síðar. Hér er Ingi Gunnarsson fyrirliði fyrstu meistaranna úr ÍKF með grip sinn.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið