© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
13.9.2005 | 11:18 | bl
Námskeið Bill Guthridge um næstu helgi
Þann 17.-18. september n.k mun Bill Guthridge, fyrrum aðal og aðstoðarþjálfari University of North Carolina til þrjátíu ára, standa fyrir þjálfara námskeiði í hinum glæsilegu húsakynum íþróttaakademíunar í Reykjanesbæ, verði þau tiltæk til notkunar á þessum tímapunkti annars í íþróttahúsinu við Sunnubraut í Keflavík.

North Carolina liðiðr án efa eitt frægasta háskólalið í Bandaríkjunum og hefur getið af sér ekki ómerkari menn en Michael Jordan, James Worthy, Vince Carter, Rasheed Wallace, Antwan Jamison ofl. Þess má geta að Bill var einnig einn af þremur þjálfurum bandaríska landsliðsins sem vann gullverðlaun á Ólympíuleikunum árið 1976.

Þetta er kjörið tækifæri fyrir alla sem áhuga hafa á körfubolta, hvort sem þeir eru þjálfarar eða áhugamenn um íþróttina, að hlusta á þennan merka mann sem hefur frá ýmsu að segja og mun fara vítt og breytt um hina ýmsu þætti körfuboltans. Hann mun t.a.m. stjórna æfingu sem verður í anda hefðbundar æfingar hjá North Carolina. Um að gera fyrir körfuboltadeildir að senda alla sína þjálfara til að fá nýjar hugmyndir og skerpa á þeim sem fyrir voru.

Upplýsingar gefur Tómas í síma 899-0525
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Einn af leikmönnum á yngra ári í minniboltaliði ÍR 1983, en hann hefur komið mikið við sögu í íslenskum körfubolta. Brynjar Karl Sigurðsson, þá 10 ára.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið