S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
16.1.2001 | 9:50 | BL
Allt að verða vitlaust í NBA-deildinni
Tólf leikir fóru fram í NBA deildinni í gærkvöldi og nótt. Í New York tóku heimamenn í Knicks á móti San Antonio Spurs og sigruðu örugglega 104 - 82 en stöðva varð leikinn vegna meiðsla Van Gundy, þjálfara New York sem hann fékk við það að ganga á milli þegar Marcus Camby sló til Danny Ferry en sauma varð 12 til 15 spor fyrir ofan vinstra auga Van Gundy.
Það gekk mikið á í leik Los Angeles Lakers og Vancouver Grizzlies þar sem Shaquille O´Neal skoraði umdeilda sigurkörfu Lakers í framlengingu eftir að leiktíminn var úti en O´Neal fékk körfuna dæmda gilda á þeim forsendum að brotið hafði verið á honum áður en tíminn rann út. Þetta kom fram á visi.is í morgun. Nánar um úrslit næturinnar í NBA á nba.com Við þessa frétt af visi.is má bæta að karfan var dæmd gild á þeiri forsendu að um mistök tímavarðar hafi verið að ræða. Stöðva hefði átt tímann um leið og brotið var á Shaq og þar með hafi skottilraun hans verið gild. Shaq brenndi síðan af vítaskotinu, að venju, og tíminn rann út og Lakers fagnaði sigri. |