© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
   
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
3.9.2005 | 14:52 | Óskar Ó. Jónsson
Staðan í hálfleik: Ísland-Danmörk 32-31
Íslenska körfuboltalandsliðið spilar þessa stundina við Danmörku í
Keflavík í Evrópukeppninni. Íslenska liðið þarf að vinna leikinn með 11 stiga mun eða meira til þess að eiga möguleika á að vinna riðilinn og komast í úrslitakeppnina um sæti í A-deildinni. Ísland hefur eins stigs forskot í hálfleik, 32-31, eftir að hafa verið sjö stigum yfir eftir fyrsta leikhluta, 19-12. Logi Gunnarsson er stigahæstur í íslenska liðinu með 9 stig en Magnús Þór Gunnarsson hefur skorað 8 stig.

Stig íslenska liðsins:
Magnús Þór Gunnarsson 8, 2 af 2 í 3ja stiga
Friðrik Stefánsson 1, 7 fráköst
Jakob Sigurðarson 2
Jón Nordal Hafsteinsson
Gunnar Einarsson
Jón Arnór Stefánsson 2, 3 villur, 0 af 5 í skotum
Helgi Már Magnússon 3
Sigurður Þorvaldsson
Arnar Freyr Jónsson
Hlynur Bæringsson 7
Logi Gunnarsson 9
Egill Jónasson

Christian Drejer hefur skorað 16 stig fyrir Dani í fyrri hálfleik og fiskað auk þess 7 villur á íslensku strákana.

Tölur leiksins til þessa:
3ja stiga skotin: Ísland 12/4 (33%) Danmörk 9/2 (22%)
Vítaskotin: Ísland 18/14 (78%) Danmörk 13/7 (54%)
Fráköstin: Ísland 22 Danmörk 23
Sóknarfráköstin: Ísland 6 Danmörk 5
Tapaðir boltar: Ísland 8 Danmörk 9
Villur: Ísland 13 Danmörk 12

Mynd: Logi Gunnarsson er stigahæstur hjá íslenska liðinu í fyrri hálfleik með 9 stig en þau komu öll í 1. leikhlutanum.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá stofnfundi Körfuboltaútgáfunnar ehf. sem gaf út tímaritið “Karfan” árið 1993.  Ólafur Johnson, Pétur Hrafn Sigurðsson, Einar Bollason, Ólafur Rafnsson, Hannes Ágúst Guðmundsson, Haukur Hauksson, Sverrir Sverrisson og Björn Leósson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið