S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
15.1.2001 | 9:52 | BL
Þjálfaraskipti hjá kvennaliði Keflavíkur
Í gærkvöldi ((föstudag) ákvað Kristinn Einarsson að láta af störfum sem þjálfari kvennaliðs Keflavíkur í körfubolta. Kristinn náði mjög góðum árangri með liðið í fyrra en þá varð Keflavík Íslands- og bikarmeistari. Í kjölfarið var Kristinn endurráðinn en hefur nú sagt starfinu lausu. Ástæða uppsagnarinnar er sú að ekki var almenn sátt innan liðsins. Kristinn taldi lausn vandans ekki í sjónmáli og kaus því að láta af störfum. Kristinn skilur við félagið í bróðerni og stjórn körfuknattleiksdeildar Keflavíkur þakkar honum gott starf. Kristinn Óskarsson tekur við Seint í gærkvöldi (föstudag) náðust samningar við nýjan þjálfara, Kristinn Óskarsson. Kristinn er betur þekktur sem körfuboltadómari en hann hefur dæmt um 900 leiki. Kristinn hefur þjálfað stúlknaflokka í Keflavík undanfarin tvö ár með góðum árangri og mun leiða meistaraflokkinn það sem eftir lifir þessari leiktíð. Fyrsti leikurinn undir stjórn Kristins Óskarssonar er á morgun, en þá halda stúlkurnar til Grindavíkur. Stjórn körfuknattleiksdeildarinnar býður Kristinn velkominn til starfa og óskar honum velgengni í starfi. |