© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
29.8.2005 | 12:52 | bl
Kínverjar ánægðir með endurkomu Yao Ming
NBA-stjarna Kínverja, Yao Ming, var stighæstur í leiknum gegn Íslandi í gær með 19 stig og 9 fráköst. Kínverskir fjölmiðlar eru hæstánægðir með endurkomu Ming í landsliðið, en hann hefur átt við meiðsl að stríða undanfarna mánuði.

Einkasjúkraþjálfari Ming hafði ráðlagt þjálfara kínverska landsliðsins að nota Ming í 15-25 mínútur í leiknum, en þjálfarinn ákvað að nota hann í 31 mínútu. Kínverjum var mikið í mun að vinna sannfærandi sigur á okkar mönnum, eftir frekar dapurt gengi að undanförnu. Liðið hafði tapað sex leilkjum í röð fyrir leikinn gegn Íslandi í gær. Þar á meðal öllum leikjum sínum í fjöggurra landa móti í Ástralíu fyrir skömmu, gegn heimamönnum, Nýsjálendingum og Litháum.

Leikur Kína og Íslands verður síðasti leikur beggja liða fyrir verkefni í álfukeppnum. Kínverjar halda til Qatar í Asíuleiknana sem hefjast 8. september, en Ísland mætir Danmörku í úrslitaleik A-riðils B-deildar Evrópukeppni landsliða í Keflavík á laugardaginn kemur.


mt: Yao Ming í baráttu við Egil Jónasson í leiknum í gær.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir, leikmaður KR, hoppar hér hæð sína og hæst allra í undanúrslitum Iceland Express-deildarinnar vorið 2009.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið