© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
28.8.2005 | 14:37 | hbh
Tap gegn Kínverjum 89-51
Íslenska landsliðið lék fyrri leik sinn gegn Kínverjum og lauk sigrinum 89-51. Strákarnir áttu ekki góðan dag og virðist öll athyglin og fárið í kringum leikinn hafa haft neikvæð áhrif á leik liðsins. Léleg skotnýting og vítanýting var hjá íslensku strákunum og margir tapaðir boltar. Strákarnir ætla að taka sig saman í andlitinu og gera betur á þriðjudaginn en þá fer fram seinni leikurinn í ferðinni kl. 11.30 að íslenskum tíma.

Sigurður Ingimundarson, þjálfari var ekki sáttur með leik liðsins en segir að þeir muni leika betur á þriðjudaginn: "Við misstum einbeitinguna þegar fór að ganga illa og erfitt var að rífa liðið upp eftir það. Hræðileg skotnýting varð okkur einnig að falli, en við stóðum vel í þeim í fráköstum. Í raun má segja að okkar mesti styrkleiki hafi verið okkar versti óvinur í þessum leik - þriggja stiga skotnýting okkar var um 22% og skotnýting almennt mjög léleg, t.d. var vítanýtingin aðeins um 50%. Við lærum af þessum leik og þetta er reynsla sem fer í reynslubankann hjá strákunum, en þetta kínverska lið er alveg rosalega sterkt - hreint frábært körfuknatttleikslið! Við ætlum að gera betur á þriðjudaginn og munum laga einbeitninguna fyrir þann leik."

Hlynur Bæringsdson var stigahæstur íslensku leikmannanna með 14 stig og tók einnig 14 fráköst. Jón Arnór skoraði 8 stig, Friðrik Stefánsson 7 stig, 10 fráköst, Logi Gunnarsson og Helgi Magnússon voru með 6 stig hvor.

mtt Yao Ming skoraði 19 stig á 31 mínútu í leiknum
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá ferð U-20 ára landsliðs karla til Illinois í Bandaríkjunum árið 1982.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið