© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
26.8.2005 | 14:20 | bl
Koma landsliðsins til Xian vakti athygli
Frá landsliðinu sem er í keppnisferð í Kína: Við erum komnir til Xian, en ferðin hingað gekk vel. Á flugvellinum urðum við varir við áhuga almennings sem og fjölmiðla fyrir leikjum okkar við heimamenn. Fjölmiðlar voru mættir og almenningur vissi upp á hár hverjir við vorum.

Í dag fór liðið á æfingu í lögreglufylgd, en þannig er það hvert sem við förum. Eftir æfinguna tóku kínverskir sjónvarpsmenn viðtöl við leikmennina, en talsverð umfjöllun er í fjölmiðlum hér í Xian um leikinn á sunnudag. Almenningur hópaðist einnig að leikmönnunum eftir æfingun og erfitt var að komast leiðar sinnar.

Á morgun á að reyna að gefa sér smá tíma fyrir skoðunarferð.
Hótelið hér er mjög gott, maturinn frábær og vel fer um alla. Mikil tilhlökkun er meðal okkar manna eftir leiknum. Strákarnir biðja fyrir kveðju heim.

Kveðja Hannes Sigurbjörn


mt: Klukkuturn í Xian, þar sem fyrri landsleikur Kína og Íslands fer fram kl.12 á hádegi á sunnudag að ísl. tíma.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Lið Fylkis sem varð Íslandsmeistari í 2. deild karla veturinn 1997-1998.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið