S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
||
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
16.8.2005 | 20:09 | HBH
Ísland vann Holland 82-75
Leikurinn var frekar jafn en Hollendingar náðu 12 stiga forskoti í báðum hálfleikum. Síðari hálfleikur var ágætlega leikinn af beggja hálfu en Hollendingar alltaf aðeins á undan. Íslenska liðinu tókst að jafna 71-71 er um hálf mínúta var eftir og Hollendingar héldu boltanum það sem eftir lifði af venjulegum leiktíma og tókst ekki að skora. Í framlengingunni var íslenska liðið sterkara og náði að tryggja sér sigur 82-75. Sigurður Ingimundarson, landsliðs var að vonum ánægður með sigrana gegn Hollandi: "Strákarnir stóðu sig allir vel og var baráttan í liðinu til fyrirmyndar. Dagskipunin var að vinna báða leikina og það tókst með ágætum. Við keyrðum á 12 leikmönnum í fyrri hálfleik og 11 í seinni og var ánægjulegt að sjá að leikur liðsins er í góðum málum sama hverjir eru inn á leikvellinum." Helstu tölur íslensku leikmannanna: Sigurður Þorvaldsson. 14 stig, 3 fráköst, 1 stolinn bolti, Jón Arnór Stefánsson, 13 stig, 6 fráköst, 3 stoðsendingar, 2 stolnir boltar, Logi Gunnarsson, 10 stig, 4 fráköst, 3 stoðs., Magnús Þór Gunnarsson 8 stig, 3 fráköst, 1 stoðs, 2 stolnir boltar, Friðrik Stefánsson, 8 stig, 7 fráköst, 1 stolinn bolti, Hlynur Bæringsson, 6 stig, 10 fráköst, 1 stolinn bolti.Jakob Sigurðarson, 6 stig, 1 frákast, Arnar Freyr Jónsson, 6 stig, 2 stoðs, 1 stolinn bolti, Jón N. Hafsteinsson, 5 stig 2 fráköst, 1 stolinn bolti, Helgi Magnússon, 4 stig, 1 frákast, Gunnar Einarsson, 2 stig,Egill Jónasson, 2 stig. Byrjunarlið Íslands: Jón Arnór Stefánsson, Magnús Þór Gunnarsson, Logi Gunnarsson, Hlynur Bæringsson og Friðrik Stefánsson. m.t.t. Sigurður Þorvaldsson var stigahæstur með 14 stig. |