© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
30.7.2005 | 21:17 | ÞM/HSA | Yngri landslið
Líður að lokum í Tallinn
Portúgalir voru andstæðingar 16 ára stúlknanna í dag í næstsíðasta leik þeirra í Evrópumótinu í Tallinn. Um hörku leik var að ræða fyrstu þrjá leikhlutana. Hins vegar kom “slæmur leikkafli” hjá íslenska liðinu í fjórða leikhluta og endaði leikurinn með 20 stiga tapi sem gefur ekki rétta mynd af gangi leiksins.
Íris var stigahæst í dag með 16 stig, Hafrún og Alma komu þar næstar og skoruðu 8 stig hvor. Ólíkt öðrum leikmönnum íslenska liðsins var Ingibjörg sjóðheit í dag, en gat hinsvegar ekki spilað leikinn af þeim sökum. Ekki er heldur útlit fyrir að hún spili á morgun þar sem hún er enn með hita.
Á morgun, sunnudag, mæta stúlkurnar stöllum sínum frá Austurríki og er það síðasti leikur þeirra á þessu Evrópumóti. Nú er því síðasta tækifæri þeirra til að spýta í lófana og ná langþráðum sigri.

Þrátt fyrir að liðið hafi ekki náð að sigra hingað til þá er ómetanleg sú reynsla sem stelpurnar hafa fengið með því að taka þátt í mótinu. Helmingur liðsins er fæddur 1990 og á því möguleika á að koma aftur að ári. Í öllu mótlætinu hafa stelpurnar sýnt mikinn karakter og staðið þétt saman enda staðráðnar í því að halda leiknum áfram og taka þátt í að auka veg íslensku kvennakörfunnar í framtíðinni.
Í kvöld horfðu þær á leik Eista og Þjóðverja í undanúrslitum mótsins en á morgun leika Eistar og Slóvakar til úrslita. Slóvakar komust í úrslit með því að sigra Englendinga fyrr í dag í leik sem Kristinn Óskarsson dæmdi.

Sendum að lokum baráttukveðjur til strákanna á Spáni.

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Egill Jónasson sækir að Páli Axeli Vilbergssyni í toppslag Iceland Express deildarinnar 2. nóvember 2006.  Njarðvíkingar unnu þriggja stiga sigur, 76-73.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið