© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
         
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
9.8.2015 | 18:51 | Stefán | EuroBasket 2015, Landslið
Holland vann í dag
Ísland og Holland tókust á í annað sinn á þremur dögum í undirbúningi fyrir komandi Evrópumót í dag. Íslendingar unnu örugglega á föstudagskvöld, en í dag snérist lukkan á sveif með gestunum sem unnu 65-73.

Íslendingar hófu leikinn betur, þó aldrei munaði mklu á liðunum framan af, og leiddu 20-16 eftir fyrsta leikhluta og 41-33 í hálfleik. Þriðji leikhluti var mjög sveiflukenndur, Ísland byrjaði mun betur og náði 14 stiga forystu áður en gestirnir fundu taktinn og minnkuðu muninn í 1 stig fyrir lokaleikhlutann, sem var svo algjörlega eign þeirra appelsínugulu.

Stigahæstur hjá Íslandi var Jakob Sigurðarson með 17 stig og Haukur Helgi Pálsson setti 13 stig.

Næstu leikir hjá Íslandi eru á móti í Eistlandi. En þar mætir Ísland heimamönnum ásamt Filipseyingum og Hollendingum.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Kristinn Óskarsson tekur við viðurkenningu frá Hannesi Jónssyni formanni KKÍ í tilefni af 1000. leiknum sem Kristinn dæmdi á mótum á vegum KKÍ. Kristinn er aðeins þriðji dómarinn til að ná þessum merka áfanga en kollegar hans Jón Otti Ólafsson og Rögnvaldur Hreiðarsson hafa einnig náð að kljúfa 1.000 leikja múrinn.
Leikur nr. 1.000 var viðureign Vals og Reynis frá Sandgerði í 1. deild karla 4. janúar 2008.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið