© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
7.8.2015 | 18:37 | U16 KK
Skellur gegn Svíum á EM hjá U16 karla
Strákarnir léku annan leikinn sinn á EM í Búlgaríu fyrr í dag en þeir máttu þola skell gegn Svíum sem léku við hvurn sinn fingur. Lokatölur 82-42 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 46-13. Nökkvi Már Nökkvason var stigahæstur í Íslenska liðinu með 13 stig þar af öll í síðari hálfleik.

Leikurinn byrjaði rólega þar sem bæði lið áttu í vandræðum að skora, Gabríel Sindri opnaði stigaskorið en eftir það tóku Svíar yfirhöndina og komust í 13-4 þegar að um 19 sekúndur voru eftir af fyrsta leikhluta. Strákarnir kláruðu sóknina of snemma og Svíar náðu stemmnings þrist á lokasekúndu fyrsta leikhluta og staðan 16-4. Í öðrum leikhluta réðu Íslensku strákarnir ekkert við pressuvörn Svía og bulluðu útí eitt. Ingi Þór og Viðar voru búnir með leikhléin í fyrsta leikhluta og gátu því ekkert stöðvað áhlaup þeirra gulklæddu. Annar leikhluti endaði 30-9 fyrir Svía sem leiddu 46-13. Gísli Hallsson fékk högg á hnéið og lék ekkert í síðari hálfleik.

Þjálfararnir létu vel í sér heyra í hálfleik og vakti það strákanna sem voru hálfsofandi í leik sínum í fyrri hálfleik. Leikmenn voru harðari í sínum átökum í seinni hálfleik og þeir náðu að losa betur um hvorn annan. Seinni hálfleikur tapaðist með 7 stigum 36-29 og var jákvætt að strákarnir hættu aldrei að reyna.

Riðilinn er mjög sterkur sem Íslensku strákarnir eru í, en þrír hörkuleikir eru eftir í riðlinum. Á morgun leika strákarnir gegn Makedoníu sem leiða með níu stigum í hálfleik eftir að hafa lent sjö stigum undir í byrjun leiks. Það er enginn uppgjöf í hópnum og allir að drekka í sig reynslu.

Tölfræði leiksins
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Leikmenn í úrslitaleik KR og Keflavíkur í bikarkeppni kvenna árið 2001 heiðra framkvæmdastjóra KKÍ, Pétur Hrafn Sigurðsson, á fertugsafmælisdegi hans 24. febrúar 2001.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið