© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
6.8.2015 | 17:26 | Bryndis | Yngri landslið
U18 - Sigur gegn Kýpur í gær
Stelpurnar í U18 spila gegn Kýpur, Írlandi og Armeníu um sæti 17-20 á EM. Fyrsti leikurinn var í gær og var það gegn Kýpur.
Stelpurnar mættu ákveðnar til leiks og þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður var staðan orðin 12-2 fyrir Íslandi. Kýpur náði þó að laga stöðuna aðeins og eftir fyrsta leikhluta var staðan 15-6.

Í öðrum leikhluta var staðan orðin 30-13 og eftir þann þriðja var staðan 49-22. Íslensku stelpurnar héldu fullum krafti út leikinn og sáu til þess að Kýpur skoraði ekki stig í fjórða leikhluta og endaði leikurinn 64-22.

Eins og sjá má af tölunum var Ísland með mikla yfirburði í þessum leik. Íslensku stelpurnar mættu vel stemmdar og var mikil barátta í liðinu og skipti engu máli hver kom inn á. Stigahæst var Þóra Kristín Jónsdóttir með 13 stig, 5 fráköst og 5 stolna, Irena Jónsdóttir með 10 stig, Sylvía Hálfdánardóttir með 10 stig og 6 fráköst og Emelía Ósk Gunnarsdóttir með 9 stig, 7 fráköst, 4 stoðsendingar og 3 stolna.

Því miður meiddist Dagný Lísa Davíðsdóttir þegar hún skall með höfuðið illa í gólfið en sem betur fer eru meiðslin ekki alvarleg en hún mun þurfa að taka því rólega næstu dagana.

Næsti leikur liðsins er gegn Írlandi á föstudaginn kl.15:15 að íslenskum tíma.

Tölfræði leiksins.

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Fjölnir · Íslandsmeistarar 11. flokks drengja 2009
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið