© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
21.7.2005 | 7:56 | ÞM
U - 16 kvenna komnar til Tallinn
Snemma í gærmorgun lögðu stelpurnar í u - 16 liðinu af stað til Tallinn þar sem Evrópukeppnin hefst á morgun. Komið var á áfangastað laust fyrir klukkan 19 að staðartíma sem er þremur tímum á undan þeim íslenska.
Leiðsögumaður hópsins, hinn 25 ára gamli Cliff, tók á móti hópnum á flugvellinum og hefur nánast fylgt okkur hvert fótmál síðan og greitt götu okkar. Gist er í á stúdentagarði við Tækniháskólann sem er í úthverfi Tallinn. Hann er afar sovéskur í útliti en hefur nýlega verið tekinn í gegn að innan og er aðstaða ágæt, m.a. nettenging í herbergi fararstjóra. Keppnishöllin er í göngufæri og virðist aðstaða vera góð en þar verður fyrsta æfing stelpnanna kl. 19 í kvöld. Fyrsti leikur þeirra er á morgun við Slóvena kl. 17 að staðartíma.
Í dag er rólegur dagur hjá liðinu fram að æfingu, aðstæður og umhverfi kannað í góðu veðri, u.þ.b. 20° hita.
Hér er ýmislegt fróðlegt að sjá enda heimsstyrjöldinni síðari rétt nýlokið - en Eistlendingar líta svo á að henni hafi lokið 31.ágúst 1994 þegar sovéski herinn yfirgaf loks landið eftir að hafa setið hér frá 1940.
Við óskum u - 18 strákunum til hamingju með sigurinn og biðjum fyrir bestu kveðjur til allra heima.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Fjölnisdrengirnir úr sigurliði 16 ára landsliðs drengja á Norðurlandamóti unglingalandsliða 2007.  Frá vinstri, Ægir Þ. Steinarsson fyrirliði, Arnþór F. Guðmundsson, Daði Berg Grétarsson, Haukur Helgi Pálsson og Tómas H. Tómasson
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið