© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
19.7.2005 | 15:06 | rg
Tap fyrir Austurríki
Nú er nýlokið leik Íslendinga og Austurríkismanna á EM U-18 í Ruzomberok í Slóvakíu. Austurríkismenn fóru með sigur af hólmi 71-67 eftir að íslenska liðið hafði leitt með 15 stigum í hálfleik.

Íslenska liðið byrjaði mun betur en það austurríska, jók forystuna jafnt og þétt og leiddi með 15 stigum í hálfleik, 40-25. En þriðji leikhlutinn var hrein hörmung hjá liðinu og skoraði liðið aðeins 7 stig í honum, en þeir austurrísku 19. Austurríkismennirnir sigu svo fram úr í fjórða leikhlutanum og sigruðu á endanum með 4 stigum.

Íslenska liðið skaut 25 þriggjastigaskotum í leiknum og hitti úr 3.

Pavel Ermolinskij var stigahæstur með 20 stig (17 fráköst, 8 stoðs, 10 tapaða bolta), Hörður Vilhjálmsson var með 11 stig, Ólafur Torfason 10, Darri Hilmarsson 9, Sigurður Þorsteinsson 6, Árni Ragnarsson 5, Brynjar Björnsson 3 (0/10 í þriggja) og Emil Jóhannsson 3.

Nánari tölfræði
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Bjarni Gaukur Þórmundsson fylgist með efnilegum körfuboltamönnum á Elítubúðum KKÍ í Seljaskóla í júníbyrjun 2006.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið