© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
16.7.2005 | 16:06 | bl
14-2 kafli í lokin tryggði sigurinn
Ísland sigraði Makedóníu 79-69 í Evrópukeppni U-18 ára landsliða pilta í Ruzomberkok í Slóvakíu í dag. Ísland var undir 65-67 þegar þrjár mínútur voru eftir af leiknum, en tókst að tryggja sér mikilvægan tíu stiga sigur með því að skora 14 stig gegn 2 á endasprettinum; sögufrægur tölur sem reydust happatölur Íslands í dag.

Samkvæmt skilaboðum frá Inga Þór Steinþórssyni þjálfara liðsins þá var Brynjar Þór Björnsson stigahæstur með 20 stig, þar af 16 í síðari hálfleik, Árni Ragnarsson skoraði 17 stig og tók 12 fráköst, Pavel Ermolinskij var með 15 stig og 16 fráköst og Ólafur Torfason var með 11 stig og 9 fráköst. Stigahæstur Makedóníumanna var Kostoski með 24 stig.

Því miður er ekki að hafa nánari fréttir af leiknum, en úrslit frá mótinu eru ekki uppfærð á vef FIBA Europe, en aðstandendur íslenska liðsins í Ruzomberok eiga óhægt um vik að komast í tölvusamband við umheiminn. Á vef mótsins er hægt að sjá úrslit leikja, en þegar þetta er skrifað liggja ekki fyrir úrslit í leik Svía og Finna.

Ísland mætir Finnlandi á morgun í leik sem skera mun úr um hvort Ísland á möguleika á einu af efstu sætunum í mótinum eða ekki.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Pálína Gunnlaugsdóttir, Haukum, reynir að fara framhjá Marín Rós Karlsdóttur, Keflavík, í æfingaleik haustið 2006.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið