© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
11.7.2005 | 13:05 | Gylfi
Allir með
Allir leikmenn íslenska U20 landsliðsins fá að taka þátt í leikjum liðsins á EM í Búlgaríu. Í leiknum gegn Pólverjum í gær voru byrjunarliðsmennirnir ekki allir með flestar mínuturnar. Það er ekki oft sem 10. maður, sá sem leikur fæstar mínútur í liði, fái rúmlega 8 1/2 mínútu í leik. Fleiri dæmi eru um það að 2-3 leikmenn dúsi allan timann á tréverkinu.

Ágúst lék mest, 31:45 mín, Viðar 27:36 mín, Grétar 22:07, Elvar 21:31 af bekknum, Ragnar 21:16, Bjarni 20:49 af bekknum, Svenni 19:29 og Steingrímur 17:02, Friðrik 09:48, Hörður 08:37 af bekknum.

Það er líka sérkennilegt að nánast allir íslensku leikmennirnir þurfa að vera klárir að spila allar stöður á vellinum. Þannig hafa t.d. Bjarni og Svenni leikið leikstjórnanda, þrist og fjarka, glímandi við menn uppá vel rúmlega 2 metra en þessir leikmenn eru 185 og 191 sm. Hörður og Elvar spila mest stöður 4 og 5 en þeir eru báðir undir 190 sm. Bojan hefur lika oft gripið til þess að skipta á öllum skrínum, því það er bitamunur en ekki fjar hvort Íslendingur uppá 180 sm eda 188 sm lendir í því að dekka sleggju sem er nánast tvöfalt stærri!

Helsta gamanmál Bojans í morgunmatnum er að segja við Steina (180 sm.): "Steini, Steini, sjáðu bara (bendir á Georgíumanninn, Pólverjann eða Slóvakann sem eru um 2,20 m.). Þú bara fronta þennan á morgun."
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá ferð A-landsliðs karla til Sarajevo í Bosníu v/þáttöku í undanúrslitakeppni Evrópumótsins árið 1998.  Ferja þurfti rútu liðsins yfir fljót á milli Króatíu og Bosníu, þar sem brýr höfðu verið sprengdar upp í nýafstöðnu stríði.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið