© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
10.7.2005 | 19:59 | Gylfi
Tveir leikir
Eftir langbesta hálfleik sem íslenska liðið hefur spilað á EM U20 hrundi allt til grunna í seinni hálfleik og Pólverjar völtuðu yfir höfuðlausan her Íslendinga og unnu 98-52. Leikurinn er víst í 40 mínútur, en ekki 20.

Íslenska liðið gerði hið ómögulega í 20 mínútur og höfðu í fullu tré við firnasterkt lið Póllands, eitt af 2-3 bestu liðum B keppninnar hér í Búlgaríu. Ísland leiddi 21-18 eftir 10 mínútur og leikur liðsins var draumi líkastur. Samstaðan og baráttan, hittnin og liðsvinnan, í sókn og vörn, var farmúrskarandi. Pólverjar náðu forystunni og áttu síðasta skotið í fyrri hálfleik sem gaf þeim 8 stiga forskot, 38-30.
Þvílík skemmtun! En Adam var ekki lengur í Paradís. Eins og spilamennskan var frábær í fyrri hálfleik var hún slök í þeim þriðja sem Pólverjar unnu 38-6! Einstaklingsframtak og ósamstaða var íslenska liðinu að falli og það var ekki fyrr en í lok leiksins sem örlaði aftur á vitrænum leikköflum. Steingrímur Ingólfsson, Elvar Guðmundsson, Friðrik Sigurðarson og Bjarni Bjarnason drifu liðið þá aftur í gang og skoruðu góðar körfur eftir fallegar leikfléttur og börðust blóðugri baráttu í vörninni, gegn þrítugum múrnum.

Stig Íslands í leiknum skoruðu: Sveinbjörn Claessen 14, Viðar Hafsteinsson 13, Elvar Guðmundsson 8, Ragnar Gylfason 6, Steingrímur Ingólfsson 5, Bjarni Bjarnason 5 og Ágúst Angantýsson 1. Fráköstin fóru 25-50 fyrir Pólland, tapaðir boltar 27-25 fyrir Ísland. Nánari tölfræði á heimasíðu FIBA.

Engir leikir eru á morgun mánudag og hafa Íslendingar því ráðrúm til að horfa í eigin barm og leita skýringa á seinnihálfleiknum í kvöld en liðið mætir Írum á þriðjudag og það verður enn ein þrekraunin.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Helgi Jóhannsson leikmaður ÍR var frægur fyrir húkkskot sín
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið