© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
4.1.2001 | 15:11 | BL
Mörg lið mæta sterkari til leiks
Keppni í Epson-deildinni hefst á ný í kvöld eftir jólafrí og er heil umferð á dagskránni. Mörg lið mæta sterkari til leiks með nýja, en þó nokkuð þekkta, leikmenn innanborðs. Þrír leikmenn sem leikið hafa erlendis fyrir áramót og tveir nýir erlendir leikmenn eru á leikmannalistum félaganna nú í byrjun nýs árs.

Fyrstan skal telja miðherja landsliðsins, Friðrik Stefánsson, sem kominn er heim frá Finnlandi og mun leika með UMFN.

Þá eru nokkrir strákar sem leikið hafa með menntaskólaliðum í Bandaríkjunum komnir heim á fornar slóðir. Í hópi þeirra eru þeir Hlynur Bæringsson, sem leika mun með Skallagrím og Ingvar Guðjónsson sem aftur er kominn í leikmannahóp Hauka.

Þá er kominn nýr erlendur leikmaður í herbúðir Grindvíkinga, en Bandaríkjamaðurinn Kim Lewis, sem átti við meiðsl að stríða, verður ekki meira með liðinu í vetur. Í hans stað Panamamanninn Kevin Daley, sem síðast lék með liði í Kostaríka. Daley þessi, sem að sögn Grindvíkinga þykir hafa ótrúlegan stökkkraft, verður með UMFG gegn Val í kvöld.

Þá hafa Þórsarar á Akureyri endurheimt Daniel Maurice Spillers, sem lék með liðinu í fyrra. Hann mun leysa Clifton Bush af hólmi, en Þórsarar ákváðu um jólin að láta hann fara og fá Spillers í staðinn. Spillers lék við góðan orðstýr á Akureyri í fyrra og féll afar vel inn í leik liðsins. Spillers verður með Þórsurum gegn Skallagrím í kvöld.

Eftirtaldir leikir eru á dagskrá Epson-deildarinnar í kvöld:
Skallagrímur - Þór Ak.
Valur - UMFG
Haukar - Keflavík
KFÍ - Hamar
KR - ÍR
UMFN - Tindastóll
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Hann rífur í!   Bryndís Guðmundsdóttir passar að bikarinn sem U16 ára kvenna á Norðurlandamótinu í Svíþjóð árið 2004 skili sér til Íslands. Liðsfélagi hennar Helena Sverrisdóttir skutlar henni enda rífur bikarinn aðeins í.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið