© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
2.1.2001 | 15:07 | BL
Óskar Ó. Jónsson vefstjórameistari 2000
Óskar Ó. Jónsson frá Vísi.is sigraði í vefstjórakeppninni sem fram fór sl. föstudagskvöld. Óskar sigraði með yfirburðum í keppninni og athygli vakti frammistaða hans á körfuboltavellinum, þar sem hann var með frábæra nýtingu í þeim þrautum sem fyrir hann voru lagðar.

Óskar fékk fullt hús stiga í stiger-keppninni og einnig úr lay-up keppninni. Þá var hann með 60%nýtingu í þriggja stiga skotum, sem er nýting sem fáir geta státað af. Það má því segja að Óskar hafi rúllað upp tölfræðinni á föstudagskvöldið eins og svo oft áður.

Í spurningakeppninni reyndist Gunnar Freyr Steinsson, eða Mikki Vefur frá dómaravefnum, Óskari verðugur keppinautur. Gunnar Frey náði bestum árangri í spurningunum og varð í öðru sæti í keppninni. Snorri Örn Arnaldsson frá Fjölni varð í þriðja sæti í keppninni.

Það vakti nokkra athygli að engin vefstjóranna gat svarað rétt spurningunni um hve margir Norðurlandabúar lékju í Epson-deildinni. En rétt svar er að þeir eru um það bil 120.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Fréttamenn Stöðvar 2, þeir Einar Bollason og Valtýr Björn Valtýsson, í beinni útsendingu frá stjörnuleik NBA í Phoenix í Bandaríkjunum í febrúar 1995,
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið