© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
4.6.2005 | 15:03 | bl
Silfurverðlaunin í höfn hjá strákunum
Silfurverðlaun eru staðreynd hjá báðum íslensku körfuknattleiksliðunum á Smáþjóðaleikunum í Andorra. Karlaliðið sigraði San Marínó nú rétt áðan 94-82.

Leikurinn var erfiður, hiti mikill í höllinni og andstæðingarnir sýnd veiði en ekki gefinn. Þótt San Marínó sé lítið land þá er landslið þeirra sterkt, enda mega erlendir leikmenn sem búa í landinu leika með hér á þessu móti. Þess vegna er fjöldi Ítala í liði þeirra.

Það var ekki fyrr en í lokafjórðungnum í leiknum að Ísland náði að hrista andstæðingana af sér. Fram af því hafði leikurinn verið í járnum, en Ísland hafði þó lengst af yfirhöndina. Eftir fyrsta leikhluta var staðan 25-24 fyrir Ísland og 47-43 í hálfleik. Eftir þrjá fjórðunga var staðan 68-65. Það var síðan í stöðunni 72-72 að leiðir skyldu og íslenska liðið náði góðum leikkafla sem gerði útslagið.

Leikmenn San Marínó stjórnuðu að mestu hraðanum í leiknum. San Marínó spiluðu rólegan bolta og nýttu skotklukkuna til fulls og komu í veg fyrir að íslensku strákarnir spiluðu sinn hraða bolta.

Íslenska liðið fær silfurverðlaun sín afhent innan skamms, en úr körfuboltahöllinni fer liðið á frjálsíþróttavöllinn til að fylgjast með lokagreinunum þar. Þaðan fer rútan síðan kl.19:30 áleiðis til Barcelona. Íslensku landsliðin eru eru væntanleg heim um kl. 01:30 í nótt.

Tölfræði leiksins.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Jón Arnór Stefánsson, leikmaður íslenska landsliðsins, gægist hér framhjá tveimur varnarmönum hollenska liðsins í leik liðanna í ágústmánuði 2009. Hollendingar reyndu að klófesta íslenska liðið en höfðu ekki erindi sem erfiði enda vann Ísland góðan sigur 87-75 eftir að hafa leitt með allt að 28 stigum. Jón Arnór var stigahæstur allra leikmanna á vellinum mdð 23 stig.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið