© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
30.5.2005 | 8:23 | bl
Spennandi verkefni framundan í Andorra
Landslið karla og kvenna komu til Andorra í gærkvöldi eftir langt ferðalag. Flogið var til Barcelona, en ÍSÍ var med leiguflug á vegum Icelandair fyrir íslenska hópinn, sem telur allt í allt á þriðja hundrað manns. Sídan var farið med rútu upp í fjöllin til Andorra.

Liðin æfa í dag og búa sig undir leikina sem hefjast á morgun, mánudag. Í kvöld kl. 21.00 að staðartíma er svo setningarathöfn Smáþjóðaleikanna á aðalleikvanginum hér í Andorra. Búist er við rigningu hér í dag, en í gæ var sól og 25 gráððu hiti. ÍSÍ-menn eru þó vid öllu búnir og eru með regnstakka klára á allan mannskapinn komi dropi úr lofti í kvöld.

Sú breyting varð á karlalandsliðinu að reynslumesti leikmaður liðsins, fyrirliðinn Friðrik Stefánsson, gat ekki farið í ferðina vegna meiðsla sem hann hlaut á æfingu. Þar er sannarlega skarð fyrir skyldi, en þrátt fyrir það eru allir ákveðnir í að gera sitt allra besta hér á leikunum.

Allir aðrir eru heilir og biðja ad heilsa heim!
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Ægir Þór Steinarsson, var fyrirliði íslenska U-18 ára liðsins, sem varð Norðurlandameistari vorið 2009 í Solna í Svíþjóð. Hér sækir hann að Norðmönnum en Ísland vann 75-60.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið